Birkir þarf ekki að fara í aðgerð og vill ekki spila á Norðurlöndum fram að HM Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. nóvember 2017 07:55 Birkir Már Sævarsson í leik með Íslandi vísir/getty
Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður íslenska landsliðsins í fótbolta, þarf ekki að fara í aðgerð vegna viðbeinsbrotsins sem hann varð fyrir í lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar í síðustu viku. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en þar segir Birkir að beinið ætti að gróa sjálfkrafa á sex vikum. Ekki brotnaði úr beininu sem hefði skapað vandamál, að sögn Birkis. Hann segir það lán í óláni að meiðast á þessum tímapunkti þar sem tímabilinu er lokið í Svíþjóð en hann þarf nú að hugsa næsta skref til að halda sér í standi fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta næsta sumar. Birkir segir ekkert að gerast í sínum málum en hann vill ekki spila á Norðurlöndum fram að HM þar sem tímabilið þar hefst ekki fyrr en í mars. Hann vill byrja að spila aftur strax í janúar og vera að fram í maí áður en HM hefst. „Hjá mér er forgangsatriði að spila í deild sem er í gangi frá og með janúar. Deildirnar á Norðurlöndunum eru byggðar upp á svipaðan hátt og sú íslenska og ég sé því ekki mikinn mun á því að spila heima eða á Norðurlöndunum hvað það varðar. Þá myndi ég spila í einn eða tvo mánuði fram að HM,“ segir Birkir Már.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Sjá meira