Glamour

Jólakjóllinn í ár er rómantískur og látlaus

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Er þetta kjólasniðið sem klæðir alla vel? Það segir Susie Cave, hönnuður merkisins The Vampire's Wife og eiginkona rokkarans Nick Cave. 

Á dögunum sameinaðist fólk úr tísku-, lista- og tónlistarheiminum í sætri og rómantískri veislu til að fagna samstarfi Matches Fashion og The Vampire's Wife. Matches er skemmtileg tískuverslun í London, og er The Vampire's Wife lítið fatamerki í eigu fyrirsætunnar Susie Cave. 

Þó að tískuhúsið sé lítið þá treystir hún vel á eina flík, sem hún gerir aftur og aftur, í misjöfnum mynstrum og efnum. Margir gestir veislunnar klæddust þessum merka kjól, og virðist hann klæða alla jafn vel. 

Er þetta sniðið sem við ætlum að leita okkur af fyrir jólin? Hér er hægt að sjá þessa fallegu kjóla betur. 

Ruth Negga í svörtum og gylltum kjól
Susie Bubble í mynstruðum
Mjög fallegur blár úr velúr
Stuttur og silfurlitaður
Fjólublár úr flaueli
Svartur og klassískur velúr


×