Enn gríðarlega hvasst í Hamarsfirði en mokstur víða hafinn á vegum Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. nóvember 2017 08:40 Appelsínugul viðvörun er í gildi á Austfjörðum. Skjáskot/Veðurstofa
Enn er lokað um Víkurskarð, Hófaskarð, Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Fagradal og Fjarðarheiði, að því er fram kemur á vef vegagerðarinnar. Þá eru gríðarlegar vindhviður í Hamarsfirði og ófært um hann vegna veðurs. Mokstur er þó víða hafinn á þungfærum vegum. Veður er víða slæmt á landinu og er enn beðið með mokstur á Austurlandi vegna þess, segir í frétt vegagerðarinnar sem birt var á níunda tímanum í morgun. Þá er lokað á Vopnafjarðarheiði en hvasst er nú með austur- og suðausturströndinni.Óvissustig og appelsínugul viðvörun á AusturlandiÁ vef Veðurstofu Íslands er athygli vakin á því að viðvaranir vegna stórhríðar og vinds verði í gildi fram eftir degi. Ferðalangar eru hvattir til að kynna sér vel veðurspá og færð á vegum hjá Vegagerðinni áður en lagt er í hann. Óvissustig er enn í gildi vegna snjóflóða á Austurlandi og appelsínugul viðvörun Veðurstofu gildir á Austfjörðum. Mokstur er hafinn á Holtavörðuheiði en víða er snjóþekja og hálka á Norðvesturlandi. Þungfært er á Siglufjarðarvegi í Ketilás og ófært þaðan til Siglufjarðar en mokstur á svæðinu er þó hafinn. Þungfært er í Norðurárdal. Hálka hálkublettir og snjóþekja eru á Vesturlandi og Vestfjörðum. Þá er mokstur hafinn á Öxnadalsheiði og á Ólafsfjarðarmúla. Þæfingur, snjóþekja og skafrenningur er víða í Eyjafirði. Fyrir austan Akureyri eru vegir víða ófærir og stórhríð, lokað er á Víkurskarði, eins er lokað á Hófaskarði og síðan er lokað yfir Fjöllin frá Mývatni og austur um.
Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Fleiri fréttir Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Sjá meira