Fótbolti

Danirnir segja Ísland vera með betra lið en Kólumbía, Sviss og Svíþjóð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson er aðalstjarna liðsins hjá Dönunum og Ragnar Sigurðsson er líka nefndur.
Gylfi Þór Sigurðsson er aðalstjarna liðsins hjá Dönunum og Ragnar Sigurðsson er líka nefndur. Vísir/Getty
Danir verða eins og við Íslendingar í pottinum þegar dregið verður í riðli í úrslitakeppni HM í fótbolta en drátturinn fer fram á morgun í Kremlín höllinni í Moskvu.

Danska ríkisstjórnvarpið, DR, hefur raðað öllum 32 þjóðunum í styrkleikaröð fyrir dráttinn.

Danirnir segja þar að aðeins fjórtán þjóðir séu með betra landslið en Ísland en strákarnir okkar eru í fimmtánda sæti á lista DR.

Sérfræðingar DR hafa auðvitað trú á sínu landsliði en Danir sjálfir eru í þrettánda sæti og því aðeins tveimur sætum ofar en við Íslendingar.

Á milli Dana og Íslendinga eru Nígeríumenn og Króatarnir eru síðan þremur sætum ofar en íslenska landsliðið þrátt fyrir að Ísland hafi skilið þá eftir í öðru sæti riðilsins í undankeppninni.

Meðal þjóða sem Danir telja að séu með slakara lið en Ísland eru Kólumbía, Sviss og Svíþjóð.

Stærstu stjörnur íslenska liðsins að mati DR eru þeir Gylfi Þór Sigurðsson, Bikir Bjarnason og Ragnar Sigurðsson.

Íslenska liðið fær hrós fyrir að vinna riðil með sterkum knattspyrnuþjóðum eins og Króatíu, Úkraínu og Tyrklandi og þá er rifjað upp þegar íslenska liðið komst alla leið í átta liða úrslitin á EM í Frakklandi 2016.

Styrkir liðsins eru hinsvegar ekki stjörnurnar heldur liðsheildin, samheldnin og stemmningin.

„Ísland er í fyrsta sinn með á HM og eru Íslendinga mjög ánægðir með það. Liðið verður skeinuhættur mótherji fyrir allar þjóðir í lokakeppninni,“ segir í umfjölluninni um Ísland.



DR hefur birt efstu 22 liðin á listanum sínum sem má sjá hér (10 til 19) og hér (20 til 32) en topplistinn er síðan hér fyrir neðan.



Styrkleikaröð DR: (10. til 32. sæti)

10. sæti Úrúgvæ

11. sæti Mexíkó

12. sæti Króatía

13. sæti Danmörk

14. sæti Nígería

15. sæti Ísland

16. sæti Sviss

17. sæti Kólumbía

18. sæti Senegal

19. sæti Svíþjóð

20. sæti Marokkó

21. sæti Egyptaland

22. sæti Serbía

23. sæti Japan

24. sæti Kosta Ríka

25. sæti Íran

26. sæti Perú

27. sæti Túnis

28. sæti Suður-Kórea

29. sæti Sádí-Arabía

30. sæti Rússland

31. sæti Panama

32. sæti Ástralía




Fleiri fréttir

Sjá meira


×