Það er alþekkt hjá fræga fólkinu í Hollywood að þurfa að fjarlægja húðflúr sem minna á fyrrverandi maka. Þó sársaukafullt sé að fjarlægja flúrin, geta minningarnar um ævintýri sem endaði verið enn sársaukafyllri.

Ekki merkja þig með brúðkaupsdeginum
Big Bang Theory-leikkonan Kayley Cuoco gekk að eiga tennisstjörnuna Ryan Sweeting í desember árið 2013. Í september tveimur árum seinna tilkynntu þau um skilnað sinn.Kayley lét húðflúra brúðkaupsdagsetninguna á bak sitt en lét síðan flúra skordýr yfir dagsetninguna þegar skilnaðurinn gekk í gegn. Kayley ræddi opinskátt um þetta á Instagram-síðu sinni.
„Muna - ekki merkja líkama þinn með brúðkaupsdagsetningum í framtíðinni,“ skrifaði hún og bætti við að nýja húðflúrið bæri enga djúpa merkingu heldur væri eingöngu til að hylja fyrra flúrið.

Fylliraftur að eilífu
Eitt frægasta flúrdæmið í Hollywood er án efa þegar leikarinn Johnny Depp lét húðflúra á sig Winona Forever á þeim tíma sem hann deitaði leikkonuna Winonu Ryder.Johnny og Winona hættu saman í byrjun tíunda áratugs síðustu aldar og lét Johnny í framhaldinu breyta húðflúrinu í Wino Forever, en Wino þýðir manneskja sem drekkur aðeins of mikið af ódýru víni.
Í viðtali við Playboy stuttu eftir breytinguna sagði hann að nýja flúrið væri ef til vill meira lýsandi fyrir hann.

Bæ, bæ Billy
Leikaraparið Angelina Jolie og Billy Bob Thornton var gift á árunum 2000 til 2003. Parið var mikið í sviðsljósinu á sínum tíma og lét Angelina flúra nafn Billys á vinstri upphandlegg sinn.Síðar meir lét hún fjarlægja húðflúrið en setti hnit fæðingarstaða barna sinna í staðinn.

Beint í hjartastað
Það kom mörgum í opna skjöldu þegar leikkonan Melanie Griffith og leikarinn Antonio Banderas skildu árið 2015 en þau gengu í það heilaga árið 1996.Á meðan allt lék í lyndi lét Melanie flúra nafn Antonio á upphandlegg sinn og hjarta utan um það. Eftir skilnaðinn lét hún afmá nafn fyrrverandi eiginmannsins en hélt hjartanu. Í dag hefur hún látið fjarlægja húðflúrið algjörlega.

„Seal of Approval“
Ofurfyrirsætan Heidi Klum og söngvarinn Seal voru eitt af þessum pörum sem fólk hélt að myndi aldrei skilja. Það gerðu þau samt árið 2015, eftir tíu ára hjónaband.Heidi merkti sig Seal með því að flúra nafn hans á handlegg sinn. Eftir hjónaskilnaðinn lét hún nánast fjarlægja öll ummerki um þetta flúr.

Eru álfar kannski menn?
Leikkonan Denise Richards og glaumgosinn Charlie Sheen innsigluðu ástina árið 2002 með því að flúra nafn hvors annars á líkama sína.Denise lét húðflúra nafn Charlie á ökkla sinn, en eftir skilnaðinn árið 2006 lét Denise breyta nafninu í fallegan álf.
Þess má geta að Charlie lét húðflúra nafn Denise á úlnlið sinn en lét fjarlægja það að ósk þáverandi unnustu sinnar, Brooke Mueller.