Glamour

Fjólubláar varir og bronslituð augu

Kynning skrifar
Glamour í samstarfi við Max Factor sýnir hér glæsilega förðun sem í nokkrum einföldum skrefum hægt hægt að leika eftir. Sanseruð og bronslituð förðun með djúpum fjólutón á vörum.

Þessi augnförðun hentar hvaða augnlit sem er en sérstaklega þeim sem eru með blá og græn augu þar sem bronsliturinn dregur fram augnlitinn.

Bronslitaður augnskuggi er borinn á augnlok og undir augnbein til að fá aukna dýpt og því næst er ljós litur borinn í innri augnkrók til að það birti yfir augnsvæðinu.

Svartur augnblýantur er borinn í efri og neðri vatnslínu fyrir skarpari augnsvip.

Tvö lög af maskara eru borin á augnhár til að draga augun betur fram.

Léttur farði á húð og bronslitað sólarpúður sem veitir ljóma borið á enni og kinnbein. Til að fullkomna útlitið er djúpur fjólutónn borinn á varir og gloss bætt ofan á fyrir aukinn glans.

Hér má sjá Glamour með Hörpu Kára í fararbroddi leika förðunina eftir í myndbandi sem fylgjendur okkar á Instagram fengu beint í æði í vikunni. Einfalt og þægilegt - njótið!

Myndbandið var tekið upp á Samsung Galaxy S8+. 



×