Brimborg frumsýnir Volvo V60 og Citroën C3 Aircross Finnur Thorlacius skrifar 12. janúar 2018 09:24 Volvo V60 AWD tengiltvinnbíllinn er 290 hestafla tryllitæki með mikið drægi.
Brimborg efnir til tvöfaldrar frumsýningar á morgun en þá verður tengiltvinnútgáfa Volvo V60 bílsins með fjórhjóladrifi kynntur, en einnig nýr Citroën C3 Aircross sportjeppi. Volvo V60 AWD tengiltvinnbíllinn er öflugur 290 hestafla bíll með 900 km drægi með fulla rafmagnshleðslu og fullan eldsneytistank. Þessi bíll kemst fyrstu 50 kílómetrana eingöngu á rafmagni og uppgefin eyðsla hans er 1,8 lítrar. Verð hans er 5.490.000 kr. Öllu ódýrari er Citroën C3 Aircross, enda talsvert minni bíll þar á ferð. Verð hans er 2.990.000 kr. Þar fer bíll með mikla veghæð, Grip Control spólvörn og brekkuaðstoð. Ökumaður situr hátt í bílnum og hefur góða sýn fram á veginn í þessum sportjeppa. Bíllinn er rúmgóður með breiðum og þægilegum sætum, hátt er til lofts og gott fótapláss. Farangursrými bílsins er það stærsta í þessum flokki bíla eða 410 lítrar og að auki eru aftursætin á sleða svo auðvelt er að stækka farangursýmið enn meira. Frumsýning á þessum bílum eru á morgun, laugardag milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Brimborgar að Bíldshöfða og við Tryggvabraut 5 á Akureyri.Citroën C3 Aircross er háfættur.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent