Eigendur Lebowski bar opna írskan pöbb með karókíherbergi í stað Rosenberg Daníel Freyr Birkisson skrifar 15. janúar 2018 09:15 Unnið er að því að fá leyfi til þess að breyta klæðningu hússins svo hún verði í anda alvöru írskra pöbba. Vísir/Vilhelm „
Án þess að setja pressu á okkur en þá verður þetta stærsti og flottasti írski bar sem opnaður hefur verið á Íslandi,“ segir Arnar Þór Gíslason á léttum nótum en hann mun í lok febrúar, byrjun mars, opna írskan pöbb, í gömlu húsnæði tónleikastaðarins Rosenberg á Klapparstíg. Að rekstri nýja staðarins koma þeir Arnar Þór, Andri Björnsson, Logi Helgason og Óli Már Ólason, en þeir hafa til að mynda staðið fyrir rekstri Lebowski bar á Laugavegi við töluverðar vinsældir. Keyptu þeir staðinn í október síðastliðnum af Ólafi Erni Ólafssyni og Kára Sturlusyni sem þá höfðu rekið staðinn í fimm mánuði.Arnar Þór Gíslason rekur, ásamt fleirum, Lebowski bar, Kalda bar og Den Danske Kro svo fátt eitt sé nefnt.Vísir/anton brinkHann segir framkvæmdir munu fara fram á næstunni og er ætlunin að klæða húsið að utan í anda alvöru írskra pöbba. „Við erum að vinna í því að fá leyfi frá húseigendum í hverfinu og byggingarfulltrúa til þess að breyta klæðningunni og útliti hússins að utan. Stefnan er að fólk gangi framhjá og fari strax í fílinginn,“ segir Arnar. Hann bætir við að þeir félagar hafi ferðast til Írlands til þess að festa kaup á innréttingum og alls kyns veggskrauti til þess að gera upplifunina inni á staðnum sem raunverulegasta. Meðal þess sem flutt er inn sé 80 ára gömul írsk bjórdæla sem dæla mun ísköldum bjór ofan í þyrsta viðskiptavini. Innfæddir Írar leika fyrir dansiÞað verða ekki aðeins flutt inn húsgögn og veggskraut fyrir staðinn heldur segir Arnar að einnig standi til að flytja inn írska tónlistarmenn til þess að halda uppi lífi og fjöri. Hann segir einhverjar þreifingar hafa átt sér stað í þeim efnum og að ýmsir tónlistarmenn hafi sýnt því áhuga að ferðast hingað til lands í þeirri erindagjörð að flytja írska tónlist fyrir Íslendinga. Tónlistin verður í fyrirrúmi að sögn Arnars en þó verður hægt að horfa á boltaleiki dauðum stundum auk þess sem þeir sviðshræddu geta leigt sér hliðarherbergi til að syngja.
Tengdar fréttir Selja Rosenberg eftir fimm mánaða rekstur Ólafur Örn Ólafsson og Kári Sturluson hafa selt veitinga- og tónleikastaðinn Rosenberg við Klapparstíg. 5. október 2017 16:15 Kári Sturluson kaupir Café Rosenberg Kári Sturluson, tónleikahaldari, hefur keypt Café Rosenberg af þeim Þórði Pálmasyni og Auði Kristmannsdóttur en staðurinn er einn þekktasti tónleikastaður í Reykjavík. 1. febrúar 2017 16:25 Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira
Selja Rosenberg eftir fimm mánaða rekstur Ólafur Örn Ólafsson og Kári Sturluson hafa selt veitinga- og tónleikastaðinn Rosenberg við Klapparstíg. 5. október 2017 16:15
Kári Sturluson kaupir Café Rosenberg Kári Sturluson, tónleikahaldari, hefur keypt Café Rosenberg af þeim Þórði Pálmasyni og Auði Kristmannsdóttur en staðurinn er einn þekktasti tónleikastaður í Reykjavík. 1. febrúar 2017 16:25