Viðskipti innlent

Bein út­sending: Umhverfisdagur at­vinnu­lífsins

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
umhverfisdagur atvinnulífsins

Umhverfisdagur atvinnulífsins fer fram í dag á Grand Hótel Reykjavík og hefst klukkan 13:00 með opnunarávarpi Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Þá verða einnig veitt Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2026 en sýnt verður frá deginum í beinni á Vísi.

Í tilkynningu segir að þrjú fyrirtæki hafi skarað sérstaklega fram úr í tilnefningum í ár. Þau starfa í ólíkum atvinnugreinum en eiga það sameiginlegt að hafa sett sér skýr markmið og gripið til markvissra aðgerða til að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar. Þessi fyrirtæki eru Elkem Ísland, Ístak og Icelandair.

Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavik Grand og stendur yfir frá kl. 13:00 - 15:15.

Í tilkynningu segir að í ár sé sérstök áhersla lögð á ábyrga ákvarðanatöku og hvernig umhverfissjónarmið hafa áhrif á stefnu, fjárfestingar og daglegan rekstur fyrirtækja.

Fjölmargar metnaðarfullar tilnefningar hafi borist og það hafi því ekki verið auðvelt verkefni fyrir dómnefndina að velja úr þeim. Segir að árangur í umhverfismálum krefjist þátttöku fyrirtækja úr öllum atvinnugreinum, ekki síst þeim þar sem umhverfisáhrifin eru mikil. Með verðlaununum vilji Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þeirra vekja athygli á fyrirtækjum sem sýna í verki hvernig ábyrg ákvarðanataka, fjárfestingar og stöðugar umbætur geta skilað árangri í umhverfismálum.

Á Umhverfisdeginum verður eitt fyrirtækjanna þriggja útnefnt Umhverfisfyrirtæki ársins 2026 en hin tvö hljóta sérstaka viðurkenningu fyrir árangur sinn. Úr rökstuðningi sjálfstæðrar dómnefndar kemur meðal annars fram:

Elkem Ísland

Elkem Ísland hefur sýnt metnað og ábyrgð í umhverfismálum með áherslu á bætta auðlindanýtingu og nýsköpun.

Fyrirtækið hefur meðal annars unnið markvisst að því að nýta hráefni betur og draga úr sóun með því að nota úrgangstimbur í stað hluta þeirra jarðefnakola sem annars væru notuð við framleiðslu kísiljárns í verksmiðju fyrirtækisins á Grundartanga.

Með skýrum markmiðum og stöðugum umbótum sýnir Elkem hvernig umhverfisábyrgð og nýsköpun geta farið saman í orkusæknum iðnaði.

Ístak

Ístak hefur sýnt metnað og ábyrgð í umhverfismálum með áherslu á orkuskipti og bætta auðlindanýtingu.

Fyrirtækið hefur fjárfest í raforkuinnviðum og tekið í notkun rafknúnar vinnuvélar og búnað til efnisvinnslu í Stapafelli.

Með þessum aðgerðum hefur Ístak sýnt fram á að rafvæðing er raunhæfur kostur í krefjandi námuvinnslu og skapað forsendur fyrir verulegum sparnaði í notkun jarðefnaeldsneytis.

Icelandair

Icelandair hefur sýnt metnað og ábyrgð í umhverfismálum með því að samþætta umhverfissjónarmið við mikilvægar ákvarðanir um fjárfestingar og daglegan rekstur.

Félagið hefur ráðist í umfangsmikla endurnýjun flugflotans og unnið markvisst að bættri eldsneytisnýtingu.

Frá árinu 2019 hefur losun á hvern tonnkílómetra dregist saman um 22% og heildarlosun um 10%, þrátt fyrir að farþegum hafi fjölgað um 15% á sama tímabili.

Þannig sýnir Icelandair hvernig markvissar fjárfestingar og stöðugar umbætur geta skilað mælanlegum umhverfisárangri í flugrekstri.

Dómnefnd Umhverfisverðlauna atvinnulífsins skipuðu Jóna Bjarnadóttir frá Landsvirkjun, Sigríður Ósk Bjarnadóttir frá BM Vallá og María Rúnarsdóttir frá Heimum.

Skráning á Umhverfisdag atvinnulífsins fer fram hér. Á dagskrá eru meðal annars kynning á niðurstöðum nýrrar Gallup-könnunar um viðhorf fyrirtækja til umhverfismála, pallborðsumræður, afhending Umhverfisverðlauna atvinnulífsins og þrjár málstofur um málefni sem varða íslenskt atvinnulíf. Viðburðurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×