Fótbolti

Super Bowl liður í undirbúningi Southgate fyrir HM

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gareth Southgate er landsliðsþjálfari Englands
Gareth Southgate er landsliðsþjálfari Englands vísir/getty
Landsliðsþjálfari Englands, Gareth Southgate, ætlar að mæta á úrslitaleikinn í bandarísku NFL deildinni, Super Bowl, næsta sunnudag til þess að læra af honum fyrir yfirvofandi Heimsmeistaramót.

Southgate er á fullu í að reyna að undirbúa lið sitt fyrir átökin í Rússlandi í sumar, en England hefur valdið miklum vonbrigðum á undanförnum stórmótum.

Hann hefur meðal annars rætt við hátt setta menn innan rugby, krikkets, hljólreiða og hnefaleika og ætlar nú að reyna að læra eitthvað af bandarísku NFL köppunum.

Samsíða leiknum um Super Bowl mun fara fram ráðstefna meðal leiðtoga í íþróttaheiminum í Minneapolis, þar sem leikurinn fer fram, og er miði á leikinn hluti af ráðstefnunni.

England er með Belgum, Panama og Túnis í riðli G á HM í Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×