Óttast fleiri líkfundi Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. febrúar 2018 07:20 Viðbragðsaðilar reyna hvað þeir geta svo að varna megi því að blokk falli á hliðina eftir að fyrsta hæð hennar hrundi í skjálftanum á þriðjudag. Vísir/AP
Yfirvöld í Taívan lýstu því yfir í morgun að níu hefðu fundist látnir eftir jarðskjálftann, sem reið yfir eyjuna á þriðjudag. Enn er 62 saknað og óttast er að fleiri kunni að finnast látnir. Björgunarsveitir reyna nú í kappi við tímann að þræða húsarústir, ekki síst í borginni Hualien sem skemmdist mikið í skjálftanum, sem var af stærðinni 6,4. Nú þegar hefur 192 íbúum borgarinnar verið bjargað en talið er að fjöldamargir séu enn fastir í rústum 12 hæða húss sem hýsti áður hótel, íbúðir og veitingastað. Hualien er vinsæll ferðamannastaður en þar búa að jafnaði um hundrað þúsund manns. Rúmlega 800 manns hafa leitað skjóls í fjöldahjálparstöðvum og eiga þau í engin hús að venda eftir skjálftann. Þá eru fjöldamargir sem ekki treysta sér heim til sín enda nötrar eyjan enn. Rúmlega 23 milljónir manna búa í Taívan á landsvæði sem nemur um þriðjungi af flatarmáli Íslands. Hundruð eftirskjálfta hafa mælst í Tavían síðan á þriðjudaginn. Tveir snarpir skjálftar, af stærðinni 5,3 og 6,1, riðu yfir landið á sunnudag en án teljandi skemmda. Þá eru tvö ár síðan annar 6,4 stiga jarðskjálfti skall á Taívan. Þá létust 117 manns.
Tengdar fréttir Tíðir eftirskjálftar á Taívan Fjöldi bygginga í Hualien eru mikið skemmdar og hingað til er vitað um fjóra sem létu lífið í skjálftanum sem varð síðdegis í gær. 7. febrúar 2018 08:11 Hótel hrundi í stórum jarðskjálfta í Taívan Skjálftinn mældist 6,4 stig og virðist hafa valdið gífurlegum skemmdum. 6. febrúar 2018 17:24 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira
Tíðir eftirskjálftar á Taívan Fjöldi bygginga í Hualien eru mikið skemmdar og hingað til er vitað um fjóra sem létu lífið í skjálftanum sem varð síðdegis í gær. 7. febrúar 2018 08:11
Hótel hrundi í stórum jarðskjálfta í Taívan Skjálftinn mældist 6,4 stig og virðist hafa valdið gífurlegum skemmdum. 6. febrúar 2018 17:24