Sóttu hart að dómsmálaráðherra: „Er ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að falla á fyrsta prófinu?“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. febrúar 2018 11:15 Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, á fundi stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar í gær þar sem hún svaraði fyrir embættisfærslur sínar við skipun dómara í Landsrétt. Hart var sótt að ráðherra við upphaf þingfundar í dag vegna málsins. vísir/eyþór
Þingmenn stjórnarandstöðunnar komu hver á fætur öðrum í pontu Alþingis við upphaf þingfundar í dag undir liðnum fundarstjórn forseta. Ræddu þeir allir hið svokallaða Landsréttarmál en eins og kunnugt er hefur mikill styr staðið um skipun Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra, í embætti dómara við Landsrétt. Fyrir jól komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að ráðherrann hefði brotið lög við skipunina og dæmdi ríkið til að greiða tveimur umsækjendum miskabætur vegna málsins. Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar, kom fyrstur í pontu og gagnrýndi ráðherra harðlega fyrir að upplýsa þingheim ekki um það að verulegar efasemdir væru á meðal embættismanna stjórnarráðsins um þá leið sem Sigríður fór við skipun dómaranna. Sagði Jón Steindór það forkastanleg vinnubrögð af hálfu ráðherrans. Þá sagði hann jafnframt málatilbúnað hennar varðandi ábyrgð sína og svo Alþingis við skipunina með nokkrum ólíkindum. „Og hlýtur að vekja upp margar spurningar um upplýsingaskyldu ráðherra til þingsins. Hæstvirtur ráðherra hefur kosið að í málsvörn sinni að varpa allri ábyrgð á herðar þingsins í stað þess að axla þá ábyrgð sjálf sem henni ber,“ sagði Jón Steindór. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, sagði engin skrifleg gögn hafa komið til Alþingis sem bentu til þess að nokkur sérfræðingur hefði ráðlagt dómsmálaráðherra að fara þá leið sem hún síðan fór. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, var meðal þeirra sem gagnrýndi dómsmálaráðherra á þinginu í morgun. Vísir/Anton Spurði hvort það hafi ekki kviknað á neinum viðvörunarbjöllum hjá ráðherra „Það var sem sagt þannig að enginn ráðuneytisstarfsmaður, enginn embættismaður, enginn lögfræðingur eða sérfræðingur í stjórnsýslurétti var sammála mati hæstvirts dómsmálaráðherra að það stæðist stjórnsýslulög að handvelja dómaraefni án ítarlegrar rannsóknar og greinargóðs rökstuðnings. Og ef svo var, kviknuðu engar viðvörunarbjöllur hjá hæstvirtum dómsmálaráðherra? Hvers vegna lét hún okkur ekki vita af þessu?“ spurði Þórhildur Sunna og bætti við hvers vegna ekkert hefði verið skráð um það ef einhver af þeim sem ráðherrann leitaði ráða hjá var sammála hennar lagatúlkun. „Eru þessi vinnubrögð boðleg?“ spurði Þórhildur Sunna. Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að það hefði ekki legið fyrir þinginu eða fyrir kosningar að Sigríður hefði fengið fjölmargar ráðleggingar um að leið hennar við skipuna dómaranna væri ekki fær. Þá hefði heldur hvorki legið fyrir fyrir kosningar að ráðherrann hefði brotið lög samkvæmt Hæstarétti þar sem dómurinn féll eftir kosningar. „Þetta mál er prófsteinn á endurreisn Íslands eftir hrunið. Erum við enn föst í fyrirhruns-hjólförunum þar sem frændhygli og gerræðisleg vinnubrögð ráðherra eru daglegt brauð eða erum við komin fram á veginn þar sem slík vinnubrögð líðast ekki og kalla á eðlilegar pólitískar afleiðingar? Er ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að falla á sínu fyrsta prófi?“ sagði Ágúst Ólafur. Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, varði samflokksmann sinn í umræðunni á þingi í dag.vísir/vilhelm „Áskanir á hendur hæstvirtum dómsmálaráðherra eru að mínu mati fullkomlega tilhæfulausar“ Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði skipulagða uppákomu stjórnarandstöðunnar við upphaf þingfundar mjög sérkennilega, sérstaklega þar sem málið væri enn til meðferðar hjá stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar eða það hefði hann haldið. Hann sagði að margt mætti segja um málið sem ætti heima í lengri umræðu en benti á það að þó menn gætu haft mismunandi skoðanir á dómum Hæstaréttar þá væri auðvitað farið eftir dómsorðunum. „Það er það sem skiptir máli. Í þessu tilviki var hafnað ógildingarkröfu, það var hafnað skaðabótakröfu en það var dæmd miskabótarkrafa sem verður auðvitað greidd. [...] En áskanir á hendur hæstvirtum dómsmálaráðherra eru að mínu mati fullkomlega tilhæfulausar og hafi menn fylgst með og hlustað á þær umræður sem áttu sér stað í stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd í gær og skýringar ráðherra þá ættu menn að gæta orða sinna í þessari umræðu hér,“ sagði Birgir. Umræðan um embættisfærslur dómsmálaráðherra undir liðnum fundarstjórn forseta tók rúman hálftíma og kvöddu fjölmargir þingmenn sér hljóðs, sumir oftar en einu sinni, þar á meðal Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem átti síðasta orðið. Hann gagnrýndi þingflokk Viðreisnar sem var í ríkisstjórnarsamstarfi með Sjálfstæðisflokknum og Bjartri framtíð þegar skipað var í Landsrétt og sagði flokkinn hafa gert mun meira en að óska eftir því að það yrði hugað að jafnréttissjónarmiðum við skipunina. „Þingflokksformaður Viðreisnar lýsti því yfir á opnum fundi [...] að þingflokkur Viðreisnar hefði hrakið dómsmálaráðherra til baka með listann með þeim skilaboðum að hann yrði ekki samþykktur og formaður Viðreisnar, þáverandi, ítrekar það að það verði samþykkt skipan í Landsrétt nema jafnræði verði milli kynja. En svo geta menn auðvitað í pólitískum hentugleika stundarinnar í dag hagað orðum sínum með öðrum hætti og neitað að kannast við það sem sagt var hér fyrir ári,“ sagði Óli Björn.Umræðuna alla má nálgast hér. Fréttin var uppfærð klukkan 11:50.
Alþingi Dómstólar Landsréttarmálið Tengdar fréttir Sóttu hart að Katrínu Jakobsdóttur: Þingmaður Pírata kallar eftir afsögn dómsmálaráðherra Stjórnarandstæðingar á Alþingi sóttu hart að Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, vegna stöðu Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra, en eins og kunnugt er komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu í desember síðastliðnum að ráðherrann hefði brotið lög með skipun dómara við Landsrétt. 22. janúar 2018 17:54 „Ég var mjög hugsi yfir þessu excel-skjali“ Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, segir að það hafi aldrei hvarflað að sér að dómnefnd um hæfi umsækjenda um embætti dómara við Landsrétt myndi komast að þeirri niðurstöðu að akkúrat 15 einstaklingar væru hæfastir í þær 15 stöður sem skipa þurfti við dóminn. 31. janúar 2018 11:05 Ólík sjónarmið um heimild ráðherra til að breyta tillögu hæfisnefndar Dómsmálaráðherra segir lög ekki gera ráð fyrir að hæfisnefnd hafi úrskurðarvald um hverjir skuli skipaðir í embætti dómara. Geri ráðherra breytingar á tillögu hæfisnefndar sé að Alþingis að ljúka skipun í dómaraembætti. 31. janúar 2018 19:30 Mest lesið Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Innlent Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Erlent Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Innlent Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Innlent Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Innlent Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Innlent Fyrirhugaðar aðgerðir gegn offitu harðlega gagnrýndar Innlent Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Erlent Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Þau skipa lista Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra Fyrirhugaðar aðgerðir gegn offitu harðlega gagnrýndar Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slys á Vesturlandsvegi Sunna Hlín leiðir lista Framsóknar áfram „Ákall eftir stjórnmálum sem snúast um umhverfisvernd og mannréttindi“ Skemmdir í Marteinstungukirkju vegna heits vatns „Við hefðum náð meiri árangri með því að vera innan Evrópusambandsins“ Nýr formaður VG og utanríkisráðherra ræðir losunarheimildir Rósa Björk nýr formaður VG Mun aldrei samþykkja aðild nema að við ráðum sjálf okkar auðlindum Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur Ógnaði fólki með hníf og beitti svo lögreglumann ofbeldi Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Þónokkuð margir búnir að stytta leikskólavist á föstudögum Þær skipa efstu sæti lista Vor til vinstri Samfylkingin sé að vinna mót „í vondri pólitík“ Krúttlegir heimilishundar verða að sleðahundum við Mývatn „Ég tel þetta ekki vera ákveðna höfnun á Alexöndru“ Þrír með gervigreind leysa af tæplega tuttugu manna teymi Fisk rekur á land á Stokkseyri – Fólk sækir sér í soðið Kvenfélagskonur eru orðnar þreyttar á heilbrigðiskerfinu „Evrópusambandið hefur meiri hag af því núna að mæta óskum Íslands“ Sjá meira
Sóttu hart að Katrínu Jakobsdóttur: Þingmaður Pírata kallar eftir afsögn dómsmálaráðherra Stjórnarandstæðingar á Alþingi sóttu hart að Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, vegna stöðu Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra, en eins og kunnugt er komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu í desember síðastliðnum að ráðherrann hefði brotið lög með skipun dómara við Landsrétt. 22. janúar 2018 17:54
„Ég var mjög hugsi yfir þessu excel-skjali“ Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, segir að það hafi aldrei hvarflað að sér að dómnefnd um hæfi umsækjenda um embætti dómara við Landsrétt myndi komast að þeirri niðurstöðu að akkúrat 15 einstaklingar væru hæfastir í þær 15 stöður sem skipa þurfti við dóminn. 31. janúar 2018 11:05
Ólík sjónarmið um heimild ráðherra til að breyta tillögu hæfisnefndar Dómsmálaráðherra segir lög ekki gera ráð fyrir að hæfisnefnd hafi úrskurðarvald um hverjir skuli skipaðir í embætti dómara. Geri ráðherra breytingar á tillögu hæfisnefndar sé að Alþingis að ljúka skipun í dómaraembætti. 31. janúar 2018 19:30