Stefnir í formannsslag hjá SAF Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. febrúar 2018 10:45 Þórir Garðarsson varaformaður stjórnar Samtaka ferðaþjónustunnar.
Þórir Garðarsson, forstjóri Gray Line, hyggst gefa kost á sér til formennsku hjá Samtökum ferðaþjónustunnar á aðalfundi SAF þann 21. mars. Grímur Sæmundsson, formaður til síðustu fjögurra ára og forstjóri Bláa lónsins, ætlar ekki að gefa kost á sér. Auk Þóris hefur Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF, ákveðið að söðla um og tekur við framkvæmdastjórastöðu hjá Blue Lagoon Journeys ehf., dótturfélagi Bláa lónsins. „Þeirra verður sárt saknað í forystusveit samtakanna,“ segir Þórir á Facebook en hann hefur sjálfur gegnt varaformennsku hjá SAF. Þórir segist hafa fengið mikla hvatningu um að stíga skrefið í formanninn en hann eigi erfitt með að taka því með þögninni þegar vegið sé að hagsmunum aðila í ferðaþjónustu Hann segir það hafa haft áhrif á ákvörðun sína að hann teldi ekki gott ef formaður, varaformaður og framkvæmdastjóri myndu öll hverfa á braut á sama tíma. Þórir segist í samtali við Túrista eiga von á samkeppni um formannsstöðuna. Bjarnheiður Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Kötlu Travel, segist í samtali við Túrista velta formannsframboði alvarlega fyrir sér. Framboðsfrestur rennur út þann 7. mars.
Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Helga hættir hjá Samtökum ferðaþjónustunnar Hefur störf hjá Bláa lóninu 1. júní. 6. febrúar 2018 13:03 Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira
Helga hættir hjá Samtökum ferðaþjónustunnar Hefur störf hjá Bláa lóninu 1. júní. 6. febrúar 2018 13:03