Valdís meiddist í bakinu daginn fyrir mót en hafnaði í þriðja sæti Anton Ingi Leifsson skrifar 26. febrúar 2018 20:30
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnugolfari, glímdi við erfið meiðsli í bakinu daginn áður en hún byrjaði á móti í Ástralíu þar sem hún fór á kostum. Valdís var við keppni á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu um helgina og endaði í þriðja sæti. „Völlurinn var frekar erfiður eins og sást á skorinu. Það var mikið af háu skori og niðurskurðurinn frekar hátt miðað við þáttakendurna sem voru með,” sagði Valdís Þóra í samtali við Hjört Hjartarson í Akraborginni. „Aðstæðurnar voru mjög góðar fyrstu tvo dagana, svo byrjaði aðeins að rigna þriðja daginn og svo kom þessi fínur stormur á okkur síðasta daginn sem olli fjögurra tíma frestun.” Valdís segir að hún hafi verið í vandræðum með meiðsli í baki daginn fyrir mótið og svo slæm voru þau að hún gat ekki sveiflað kylfunni eðlilega degi fyrir mót. „Ég er mjög sátt. Ég er búinn að vera spila mjög vel í tvær vikur fyrir þetta mót og vissi að ég gæti komið með góð skor. Svo meiddist ég aðeins í bakinu daginn fyrir mót og gat ekki sveiflað daginn fyrir mót. Ég er sátt við mína frammistöðu og ná að spila alla fjóra hringina svona vel.” „Þau voru ekki þægileg þessi meiðsli, en ég fékk vöðva spasma í bakið og sjúkraþjálfarinn kippti mér inn í hádegishléinu daginn fyrir mótið. Síðan var ég tíður gestur hjá honum fyrir hringina að mýkja áður en ég færi út.” Var Valdís einhverntímann nálægt því að ógna efstu sætunum? „Já, vissulega. Sérstaklega síðasta hringinn þá var ég að spila mjög vel og var að koma mér í svakalega mikið af færum. Ég hefði viljað sjá aðeins fleiri pútt detta, en þetta gekk mjög vel. Maður veit aldrei hvað hefði gerst ef allt hefði rúllað í.” Allt innslagið úr Akraborginni má heyra efst í fréttinni þar sem Valdís ræðir enn meira um hringinn, hvað sé framundan og fleira til.
Golf Tengdar fréttir Valdís Þóra: Mjög stolt af spilamennskunni um helgina Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr GL, lauk leik í 3. sæti á Australian Ladies Classic í Bonville á sjö höggum undir pari um helgina en þetta er í annað skiptið á nokkrum mánuðum sem Valdís tekur þriðja sætið á LET-mótaröðinni, þeirri næststerkustu í heiminum. 26. febrúar 2018 07:15 Valdís Þóra endaði þriðja og jafnaði besta árangur Íslendings Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, varð þriðja á Ladies Classic Bonville mótinu á Evrópumótaröðinni í golfi sem fram fór í Ástralíu um helgina. 25. febrúar 2018 09:02 Valdís Þóra: Ég ætla njóta þess að spila um helgina Valdís Þóra Jónsdóttir spilaði frábærlega á öðrum keppnisdegi á Bonville-mótinu í Ástralíu og er á meðal efstu keppenda. 23. febrúar 2018 09:17 Valdís enn í toppbaráttunni | Ólafía komst í gegnum niðurskurðinn Skagakonan Valdís Þóra Jónsdóttir gaf ekkert eftir á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu í nótt og er í fjórða sæti mótsins. 23. febrúar 2018 07:06 Valdís Þóra: Nóg af fuglum eftir Valdís Þóra Jónsdóttir er í toppbaráttunni á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu sem er hluti af Evrópumótaröðinni. 24. febrúar 2018 10:30 Valdís Þóra upp um 70 sæti á heimslistanum Valdís Þóra Jónsdóttir stökk upp um 70 sæti á heimslistanum í golfi eftir frábæra spilamennsku á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu um helgina. 26. febrúar 2018 16:45 Valdís Þóra: Vissi ég gæti verið ofarlega Valdís Þóra Jónsdóttir var að vonum mjög sátt með árangurinn í Ástralíu um helgina og segir sitt golf vera á frábærum stað. 25. febrúar 2018 11:15 Ólafía jafnaði besta hring mótsins │ Valdís Þóra í þriðja sæti Íslensku kylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir áttu frábæran dag í Ástralíu í nótt. Valdís er í toppbaráttunni á Ladies Classic Bonville mótinu og Ólafía Þórunn lék á fimm höggum undir pari sem er besta skor mótsins til þessa. 24. febrúar 2018 09:12 Mest lesið Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Handbolti Trump gæti bannað Brasilíumönnum að mæta á HM í fótbolta Fótbolti Þurfa að sanna að þær séu konur áður en þær fá að keppa á HM Sport Breyttir tímar hjá Man. United: Höjlund skoraði í stórsigri Enski boltinn Brady í Birmingham þáttum: Efaðist strax um Rooney og kallaði leikmennina lata Enski boltinn Eigendur Liverpool eyða meira í Isak en í að kaupa fótboltafélag í Madrid Enski boltinn Of falleg saga til að vera ekki skrifuð í skýin Golf Hundur beit fyrrum leikmann Barcelona í punginn Fótbolti Sjáðu Messi leggja upp sigurmarkið og öskra síðan á mótherjana Fótbolti Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Körfubolti Fleiri fréttir Of falleg saga til að vera ekki skrifuð í skýin Siggi Raggi for holu í höggi á vellinum þar sem Íslandsmótið fer fram Donald Trump sást svindla á golfvellinum Viðurkennir að prumpið sem heyrðist um allan heim sé hans Kylfusveinninn græðir meiri pening en meðalkylfingurinn á PGA Brást bogalistin fyrir framan pabba sinn Mætti með bikarinn á frumsýningu Happy Gilmore Líkja yfirburðum Schefflers við Tiger upp á sitt besta Vallarmet féllu á frábærum Korpubikar „Heppinn að fá að lifa drauminn“ Scheffler tryggði sér sinn fjórða risatitil Íslenskur dómari í næst síðasta ráshópnum á The Open Scheffler með örugga forystu fyrir lokadaginn Hvítskeggjaði kylfusveinninn stal senunni á Opna breska Vélmennið leiðir Opna breska Reyndi allt til að koma kúlunni niður Veiðimaðurinn leiðir á Opna breska Tvíburar jafnir eftir fyrsta dag á Opna breska Munkur slær í gegn á Opna breska Fimm jafnir á toppnum eftir fyrsta hring „Það hafa allir runnið í gegnum þessa lokunarpósta án vandræða“ Dani og Kínverji leiða á Opna breska Endurnýja kynnin: „Stórar skoðanir en ekki endilega góðar skoðanir“ Dæmdur ofbeldismaður keppir á Opna breska í ár Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Segist hafa farið 47 sinnum holu í höggi á ferlinum Sjá meira
Valdís Þóra: Mjög stolt af spilamennskunni um helgina Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr GL, lauk leik í 3. sæti á Australian Ladies Classic í Bonville á sjö höggum undir pari um helgina en þetta er í annað skiptið á nokkrum mánuðum sem Valdís tekur þriðja sætið á LET-mótaröðinni, þeirri næststerkustu í heiminum. 26. febrúar 2018 07:15
Valdís Þóra endaði þriðja og jafnaði besta árangur Íslendings Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, varð þriðja á Ladies Classic Bonville mótinu á Evrópumótaröðinni í golfi sem fram fór í Ástralíu um helgina. 25. febrúar 2018 09:02
Valdís Þóra: Ég ætla njóta þess að spila um helgina Valdís Þóra Jónsdóttir spilaði frábærlega á öðrum keppnisdegi á Bonville-mótinu í Ástralíu og er á meðal efstu keppenda. 23. febrúar 2018 09:17
Valdís enn í toppbaráttunni | Ólafía komst í gegnum niðurskurðinn Skagakonan Valdís Þóra Jónsdóttir gaf ekkert eftir á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu í nótt og er í fjórða sæti mótsins. 23. febrúar 2018 07:06
Valdís Þóra: Nóg af fuglum eftir Valdís Þóra Jónsdóttir er í toppbaráttunni á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu sem er hluti af Evrópumótaröðinni. 24. febrúar 2018 10:30
Valdís Þóra upp um 70 sæti á heimslistanum Valdís Þóra Jónsdóttir stökk upp um 70 sæti á heimslistanum í golfi eftir frábæra spilamennsku á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu um helgina. 26. febrúar 2018 16:45
Valdís Þóra: Vissi ég gæti verið ofarlega Valdís Þóra Jónsdóttir var að vonum mjög sátt með árangurinn í Ástralíu um helgina og segir sitt golf vera á frábærum stað. 25. febrúar 2018 11:15
Ólafía jafnaði besta hring mótsins │ Valdís Þóra í þriðja sæti Íslensku kylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir áttu frábæran dag í Ástralíu í nótt. Valdís er í toppbaráttunni á Ladies Classic Bonville mótinu og Ólafía Þórunn lék á fimm höggum undir pari sem er besta skor mótsins til þessa. 24. febrúar 2018 09:12