Efling þverneitar að afhenda B-framboði upplýsingar um félagsmenn Jakob Bjarnar skrifar 26. febrúar 2018 15:21 Gísli telur engan vafa leika á um að stjórn og skrifstofa geri upp á milli framboða en Sigurður vísar því á bug. Sólveig Anna Jónsdóttir og Ingvar Vigur Halldórsson takast á í leiðtogakjöri innan Eflingar með sína hópa. Vísir
Enn er uppi djúpstæður ágreiningur milli B-lista, sem er í framboði til stjórnar Eflingar, og stjórnar félagsins. Stjórnin neitar að afhenda framboðinu símanúmer og tölvupóstföng félagsmanna. Formaður Eflingar, Sigurður Bessason, segir þetta einfaldlega sína skoðun að um trúnaðarupplýsingar sé að ræða og sé því einhver ósammála, þá verði svo að vera. Vísir greindi frá því fyrir viku að B-listinn væri eindregið þeirrar skoðunar að stjórnin stæði með A-listanum og mismunaði listunum. Sólveig Anna Jónsdóttir leiðir B-listann en Ingvar Vigur Halldórsson A-lista. „Á mannamáli, já, þau eru að móast við að veita upplýsingar og á lögfræðimáli heitir kerfislægt ójafnræði sem ég er að reyna, fyrir hönd B-listans að vinna gegn og jafna stöðuna,“ sagði Gísli Tryggvason, lögmaður B-lista þá. Stjórn Eflingar var afar ósátt við viðtalið við Gísla og umfjöllun um erindi hans og talaði um „falsfréttir“ í því sambandi, í sérstakri fréttatilkynningu.Í huga Gísla leikur enginn vafi á um að stjórn og skrifstofa Eflingar mismuni framboðunum.visir/anton brinkGísli telur nú einsýnt að Efling sé að reyna að drepa mál sem snýr að ósk B-lista um símanúmer og tölvupóstföng félagsmanna í Eflingu.Rök stjórnar standast ekki Hann hefur sent erindi ýmist til Magnúsar Nordahl, formanns kjörstjórnar og stjórnar vegna málsins. Gísli skrifaði erindi til Persónuverndar til að fá úr því skorið hvort rök þeirra þess efnis að um trúnaðarupplýsingar væri að ræða og það stangaðist á við landslög, þær eru uppgefnar ástæður fyrir höfnuninni. Gísli hefur nú fengið svar við því erindi sínu. „Svarið er í stuttu máli nei, þau standast ekki,“ segir Gísli. Hann segist hafa fengið fyrir síðustu helgi svar frá Magnúsi formanni kjörstjórnar, „þegar ég var búinn að senda honum þetta svar, að ég teldi staðfest að rökin stóðust ekki. Þá kom svar um að þetta heyrði ekki undir kjörstjórn heldur stjórn Eflingar, sem er einskonar frávísun sem hefði átt að koma í upphafi. Og svo á laugardaginn kom höfnun frá stjórn.Þá bað ég um ný og gild rök. Og þá svaraði Magnús að þetta væru bara sömu rök og síðast. Sem ég tel nú ekki standast því rökin voru að þetta mætti ekki samkvæmt landslögum.“Telur ójafnræði fyrir hendi Erindið snýr, sem áður sagði, að aðgengi B-lista að símanúmerum og netföngum félagsmanna. Og þar með kjósenda í þessu stjórnarkjöri.En, eru þessar upplýsingar aðgengilegt A-lista? „Já, gæti verið. Okkur grunar það að aðilar tengdir þeim hafi betri aðgang að félagsmönnum. Þetta ójafnræði er fyrir hendi og á mörgum sviðum. Í dag fékkst þessi útprentaða kjörskrá en bara með nöfnum og heimilisföngum. Þá þarf framboð B að fletta því upp í símaskrá, ef það á að ná í kjósendur.“ Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla hófst á þriðjudag en eiginlegir kjördagar eru 5. og 6. mars.Sigurður Bessason segir umræddar upplýsingar tilkomnar vegna veikinda og fræðslustarfs og þær nái aðeins yfir brot félagsmanna.visir/gvaSigurður Bessason, sem nú er að stíga úr stóli formanns Eflingar eftir 18 ára starf, segir í samtali við Vísi, þessar upplýsingar ekki til útdeilingar. Og hann hafnar því að gert sé upp á milli framboða af hálfu stjórnar og skrifstofu.Skuldar félagsmönnum trúnað „Við skráum ekki símanúmer og póstföng þegar menn gerast hér félagsmenn. Ekki er fyrirliggjandi slík skrá. En slíkar upplýsingar koma í einhverjum tilfellum inn þegar einstaklingar koma hingað inn á sjúkralista, vegna veikinda, vegna fræðslusjóðs og eru þess vegna að gefa upp þessar upplýsingar svo hægt sé að hafa samband við þá. En við teljum okkur skulda þessum félagsmönnum þann trúnað að við séum ekki að deila út þeim upplýsingum.“ Sigurður segist spurður þessar upplýsingar ekki heldur aðgengilegar A-lista. „Hvorugu framboðinu.“ Hann vísar fullyrðingum Gísla á bug, þá er hann var í viðtali við Vísi fyrir viku. „Það er langur listi, en gamlar fréttir í dag,“ segir Sigurður.Telur tengsl við Sósíalistaflokkinn óheppileg Hann hafnar því að mismuna framboðunum en gerir þó athugasemd við það að framboð sé tengt með beinum hætti við pólitíska flokka. Og vísar þá til tengsla B-lista við Sósíalistaflokk Íslands. Hann segist fyrst og fremst hafa hlutverki að gegna gagnvart félagsmönnum. Og bendir á að þessar upplýsingar umræddar séu takmarkaðar. „Við sækjum þær ekki í gegnum skrár sem lúta að skráningu félagsmanna. Þessar upplýsingar eru tilkomnar vegna þess að menn eru að sækja rétt sinn og snúa aðeins að broti félagsmanna.Ég met það þannig að þær upplýsingar eigum við ekki að gefa út. Og svo mega menn bara vera annarrar skoðunar. Það verður þá svo að vera.“En, telurðu þá að B-listamenn séu að fiska í gruggugum sjó? „Ég veit ekkert um það. Þetta er ekki eitthvað sem er að gerast fyrst núna. Það voru framboð í Dagsbrún í gamla daga og þá var það með sama hætti en samkvæmt lögum félagsins er kveðið á um hvaða upplýsingar eru gefnar upp og það er með sama hætti og var þá.“
Kjaramál Tengdar fréttir Stefnir í hörð átök um Eflingu Nýtt framboð í undirbúningi gegn lista forystunnar. 25. janúar 2018 14:49 Valið stendur á milli Ingvars og Sólveigar Framboðsfrestur til formannskjörs Eflingar rann út klukkan 16 og er nú ljóst að í fyrsta sinn í sögu félagsins verður kosið um nýja stjórn. 29. janúar 2018 16:26 Stjórn Eflingar leggur steina í götu Sólveigar Önnu Sólveig Anna Jónsdóttir og félagar hennar í B-framboðinu eiga ekki uppá pallborðið hjá núverandi stjórn Eflingar. 20. febrúar 2018 16:23 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira
Stefnir í hörð átök um Eflingu Nýtt framboð í undirbúningi gegn lista forystunnar. 25. janúar 2018 14:49
Valið stendur á milli Ingvars og Sólveigar Framboðsfrestur til formannskjörs Eflingar rann út klukkan 16 og er nú ljóst að í fyrsta sinn í sögu félagsins verður kosið um nýja stjórn. 29. janúar 2018 16:26
Stjórn Eflingar leggur steina í götu Sólveigar Önnu Sólveig Anna Jónsdóttir og félagar hennar í B-framboðinu eiga ekki uppá pallborðið hjá núverandi stjórn Eflingar. 20. febrúar 2018 16:23