Sjónvarpsþáttaröðin Fangar, í leikstjórn Ragnars Bragasonar, hreppti flest verðlaun, eða tíu talsins en fast á hæla hennar kom kvikmyndin Undir trénu, í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, með sjö verðlaun.
Fangar er íslensk þáttaröð sem sýnd var á RÚV í ársbyrjun 2017. Þáttaröðin er hugarfóstur leikkvennanna Unnar Aspar Stefánsdóttur og Nína Daggar Filippusdóttur og fjallar um konur sem sitja inni í kvennafangelsinu í Kópavogi. Ragnar Bragason fer með leikstjórn þáttaraðarinnar og Margrét Örnólfsdóttir skrifaði handritið.
Undir trénu, eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson, er dramatísk mynd um nágrannaerjur. Með aðalhlutverk fara þau Steinþór Hróar Steinþórsson, Edda Björgvinsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Selma Björnsdóttir, Þorsteinn Bachmann og Lára Jóhanna Jónsdóttir.
Edda Björgvinsdóttir hlaut Edduna í flokki leikkonu í aðalhlutverki og mótleikari hennar, Steinþór Hróar Steinþórsson var valinn besti leikari í aðalhlutverki.

Kvikmynd ársins
Undir trénuEinnig tilnefndar: Svanurinn, Vetrarbræður
Leikstjórn
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénuEinnig tilnefnd: Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svaninn, Ragnar Bragason fyrir Fanga
Handrit
Huldar Breiðfjörð og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénuEinnig tilnefnd: Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svaninn, Margrét Örnólfsdóttir og Ragnar Bragason fyrir Fanga
Leikari í aðalhlutverki
Steinþór Hróar Steinþórsson fyrir Undir trénuEinnig tilnefndir: Elliott Crosset Hove fyrir Vetrarbræður, Jóhannes Haukur Jóhannesson fyrir Ég man þig
Leikkona í aðalhlutverki
Edda Björgvinsdóttir fyrir Undir trénuEinnig tilnefndar: Gríma Valsdóttir fyrir Svaninn, Heiða Rún Sigurðardóttir fyrir Stellu Blómkvist
Leikari í aukahlutverki
Sigurður Sigurjónsson fyrir Undir trénuEinnig tilnefndir: Þorsteinn Bachmann fyrir Undir trénu, Lars Mikkelsen fyrir Vetrarbræður
Leikkona í aukahlutverki
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir FangaEinnig tilnefndar: Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Fanga, Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir Fanga
Kvikmyndataka
Árni Filippusson fyrir FangaEinnig tilnefndir: Jakob Ingimundarson fyrir Ég man þig, Martin Neumeyer fyrir Svaninn
Klipping
Valdís Óskarsdóttir, Sigurður Eyþórsson og Sverrir Kristjánsson fyrir FangaEinnig tilnefndir: Guðni Hilmar Halldórsson og Gunnar Bjarni Guðbjörnsson fyrir Stellu Blómkvist Kristján Loðmfjörð fyrir Undir trénu
Brellur
The Gentlemen Broncos: Alexander Schepelern, Emil Pétursson og Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Undir trénuEinnig tilnefndir: Kontrast: Davíð Jón Ögmundsson, Sigurgeir Arinbjarnarson og Arnar Jónsson fyrir Stellu Blómkvist, Pétur Karlsson fyrir Svaninn
Leikmynd
Heimir Sverrisson fyrir FangaEinnig tilnefndir: Haukur Karlsson fyrir Stellu Blómkvist, Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Undir trénu
Tónlist
Pétur Ben fyrir FangaEinnig tilnefndir: Daníel Bjarnason fyrir Undir trénu, Gunnar Örn Tynes og Örvar Smárason fyrir Svaninn
Hljóð
Huldar Freyr Arnarson, Pétur Einarsson og Daði Georgson fyrir FangaEinnig tilnefnd: Björn Viktorsson, Frank Mølgaard Knudsen og Sylvester Holm fyrir Undir trénu, Tina Andreas fyrir Svaninn
Búningar
Helga Rós V. Hannam fyrir FangaEinnig tilnefndar: Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Stellu Blómkvist, Sylvia Dögg Halldórsdóttir fyrir Svaninn
Gervi
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir FangaEinnig tilnefndar: Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Out of Thin Air, Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Stellu Blómkvist
Heimildarmynd
Reynir sterkiEinnig tilnefndar: Háski fjöllin rumska Out of Thin Air
Leikið sjónvarpsefni
FangarEinnig tilnefnt: Loforð, Stella Blómkvist
Barna- og unglingaefni
SumarbörnEinnig tilnefnt: Loforð, Örkin
Frétta- eða viðtalsþáttur
KveikurEinnig tilnefndir: Auðæfi hafsins 2, Fósturbörn
Menningarþáttur
FramapotEinnig tilnefndir: Kiljan, Klassíkin okkar, Opnun, Tungumál framtíðarinnar
Mannlífsþáttur
Leitin að upprunanumEinnig tilnefndir: Hæpið, Paradísarheimt, Ævar vísindamaður, Ævi
Skemmtiþáttur
Áramótaskaup 2017Einnig tilnefndir: Andri á flandri í túristalandi, Hulli 2
Stuttmynd
AtelierEinnig tilnefndar: Frelsun, Munda
Sjónvarpsmaður ársins
Unnsteinn Manuel Stefánsson fyrir HæpiðEinnig tilnefndar: Guðrún Sóley Gestsdóttir fyrir Kastljós og Menninguna, Sigríður Halldórsdóttir fyrir Ævi, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrir Leitina að upprunanum, Sigyn Blöndal fyrir Stundina okkar
Upptöku- eða útsendingastjórn
Helgi Jóhannesson og Vilhjálmur Siggeirsson fyrir Söngvakeppnina 2017Einnig tilnefndir: Helgi Jóhannesson fyrir Njálu, Jón Haukur Jensson fyrir Voice Live, Þór Freysson fyrir Kórar Íslands, Þór Freysson fyrir Nýdönsk: sjálfshátíð í sjónvarpssal
Sjónvarpsefni ársins (kosning á ruv.is)
FangarEinnig tilnefnt: Fósturbörn, Kveikur, Leitin að upprunanum, Loforð, Opnun, Stella Blómkvist, Ævi, Örkin