Skaðlegt tönnum að sötra og narta Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. febrúar 2018 06:59 Ávaxtate og aðrir súrir drykkir eru sérstaklega skaðlegir tönnunnum. Vísir/Getty
Að sötra ávaxtate og aðra sýrumyndandi drykki getur haft slæmar afleiðingar fyrir tennur og glerjunginn ef marka má niðurstöður rannsóknarhóps úr Kings College í Lundúnum. Hópurinn kannaði mataræði 300 einstaklinga sem allir áttu það sameiginlegt að vera með slæma tannheilsu. Niðurstöður hópsins benda til þess að það að drekka súra drykki; eins og ávaxtate, bragðbætt vatn, sykraða sem og sykurlausa gosdrykki, á milli máltíða eða reglulega yfir daginn geti leitt til alvarlegrar tæringar tannanna. Vandamálið ku vera að færast í aukanna, ekki síst vegna þess að fólk er farið að borða óreglulegar en áður að sögn vísindamannanna. Það að vera sífellt að sötra á drykkjum yfir daginn, þannig að tennurnar eru í raun í stöðugu sýrubaði, sé gríðarlega skaðlegt fyrir glerjunginn. „Ef þú tekur þér langan tíma í að drekka drykki, þ.e. meira en fimm mínútur, geymir mat í munninum eða nartar á ávöxtum í stað þess að borða þá strax - þá getur það skemmt tennurnar,“ er haft eftir dr. Saoirse O'Toole, sem fór fyrir rannsóknarhópnum, á vef breska ríkisútvarpsins.Doktorinn ráðleggur fólki að fá sér ekki margar súrar máltíðir á dag. Ef fólk vill fá sér epli seinni partinn ætti það ekki að fá sér vín með kvöldmatnum. „Reynið bara að hafa mataræðið fjölbreytt.“
Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins Sjá meira