Mesta hækkunin hjá Costco nemur tæpum 18 prósentum, á mjólkurlítranum, á meðan kíló af hveiti hefur hækkað um 20 prósent hjá Bónus. Í matarkörfu Fréttablaðsins, sem byggir á völdum vörum úr verð- lagsathugunum ASÍ, voru fjórtán vörur að þessu sinni.
Tólf þeirra voru til í Costco að þessu sinni en af þeim höfðu átta hækkað í verði frá síðustu könnun sem gerð var 2. nóvember síðastliðinn. Tvær vörur, Smjörvi og óhrært Skyr, voru merktar á sérstöku tilboðsverði, en sú síðarnefnda hafði þrátt fyrir það hækkað lítillega milli kannana.
Í einum fjölmennasta Facebook-hópi Íslands, Keypt í Costco, hafa notendur að undanförnu kvartað sáran yfir gríðarlegum verðhækkunum á einstaka vörum. Kannanir Fréttablaðsins sýna í það minnsta að meirihluti matvöru hefur hækkað í verði undanfarna mánuði. En ekki hækkar þó allt.

Allar fjórtán vörurnar voru til í Bónus Kauptúni þar sem athugunin var gerð að þessu sinni, en af þeim höfðu níu hækkað í verði. Verð á þremur vörum reyndist óbreytt frá síðustu könnun sem gerð var 3. nóvember.
Hafa ber í huga að þó hækkunin á nautahakki virðist töluverð hjá Bónus helgast hún af því að þar var leitað að lægsta kílóverði í boði, og var ódýrari vara til í könnuninni 3. nóvember en þeirri sem gerð var 15. mars. Hjá Bónus reyndist mesta Matarkarfan hækkar í verði
Meirihluti matvörunnar í verðkönnun Fréttablaðsins hjá Costco og Bónus hefur hækkað milli kannana. Við- skiptavinir kvarta á Facebook yfir verðhækkunum hjá Costco. Kílóverð á hveiti hækkað mest hjá Bónus. lækkunin vera á kílói af sykri, 14,8 prósent, en kílóverð á eggaldini hafði lækkað um 14 prósent.
Sem fyrr var aðferðafræðin við verðathugun Fréttablaðsins sú sama og hjá Verðlagseftirliti ASÍ, þar sem skráð er niður uppgefið hilluverð vöru. Það byggir á því að það er verðið sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í búð- inni að hann eigi að greiða fyrir vöruna. Könnunin var gerð sem fyrr segir þann 15. mars í verslunum Bónus og Costco í Kauptúni.