Föst krónutala í stað hlutfalls Ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verður framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi, eða 40 prósent. Innlent 23.10.2026 11:29
Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti hefur verið lokað en starfsemin verður flutt í Grímsbæ. Þá var það sama uppi á teningnum þegar búðinni var lokað á Grensásvegi í desember fyrir þremur árum. Neytendur 22.10.2026 21:27
Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Gestgjafar sem setja húsnæði á leigu í gegnum Airbnb geta ekki lengur krafið gesti um að taka utan af rúminu eða vaska upp samkvæmt nýjum reglum. Breyttar reglur taka gildi í nóvember. Neytendur 22.10.2026 10:42
Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur 21.10.2026 06:48
Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskiptavinur flugfélags sem taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur í að uppfæra á fyrsta farrými en greiddi sexfalt hærri fjárhæð fær ekki endurgreitt. Úrskurðarnefnd sagði engin gögn til um fjárhæðina sem hann bauð auk þess sem hann hefði síðan nýtt sér þjónustuna þrátt fyrir að hann vissi hvað hún kostaði. Viðskipti innlent 20. október 2026 08:58
Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Ekki verður lengur hægt að fá tveggja lítra flöskur af sódavatninu Klaka frá Gosfélaginu innan tíðar. Félagið ætlar að skipta tveggja lítra flöskunum út fyrir minni flöskur sem eru 1,5 lítrar að stærð. Neytendur 19. október 2026 20:22
Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Margt bendir til þess að undirliggjandi verðbólguþrýstingur sé smám saman að gefa eftir að mati greiningadeildar Landsbankans. Gangi spár eftir fari vextir að lækka eftir áramót. Viðskipti innlent 19. október 2026 09:10
Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir lyfjafyrirtæki auglýsa sjúkdóma til að komast hjá reglum um bann við því að auglýsa lyfseðilsskyld lyf. Hún segir Lyfjastofnun með málið til skoðunar og telur mikilvægt að lögum sé fylgt. Neytendur 18. október 2026 14:53
Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Súkkulaðimyndir á umbúðum Swiss Miss kakódufts gefa ranga hugmynd um innihald vörunnar, að mati dansks lögmanns sem hefur kært niðurstöðu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur til atvinnuvegaráðuneytisins. Eftirlitið telur myndirnar vísa til bragðsins og vill að niðurstaða þess standi. Neytendur 14. október 2026 20:00
Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ákveðið hefur verið að breyta opnunartíma endurvinnslustöðva Sorpu á Dalvegi og í Jafnaseli í ljósi þess að móttekið magn á stöðvunum hefur minnkað síðustu mánuði og heimsóknum fyrir hádegi fækkað. Vetraropnun á Dalvegi og í Jafnaseli tekur gildi 1. nóvember 2026. Neytendur 12. október 2026 10:03
Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Á næstu vikum fer í loftið ný íslensk streymisveita sem ber heitið Heima og er samstarfsverkefni Sýnar og Sagafilm. Einungis íslenskt efni verður í boði. Neytendur 9. október 2026 20:46
Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri Örtækni, hefur fest kaup á reiðhjólaverkstæðinu Borgarhjól sem var við Hverfisgötu. James Fleatcher, fyrrverandi eigandi, fylgdi með í kaupunum. Reksturinn er kominn í Hátún. Innlent 8. október 2026 10:43
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Mjög erfitt er að halda verð- og gjaldskrárhækkunum innan verðbólgumarkmiðs þegar laun hækka meira, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann fagnar þó viðleitni opinberra aðila til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og telur ávinninginn geta skilað sér í lægri vaxtakostnaði. Innlent 7. október 2026 14:03
Hvenær ætti gjafakort að renna út? Gjafakort eða gjafabréf eru vinsælar tækifærisgjafir, stundum fyrir umtalsverðar upphæðir. Þau geta verið þægileg þegar erfitt er að vita hvað fólk langar í. Gjafakort gefa einnig viðtakandanum frelsi til að velja. Skoðun 5. október 2026 15:20
Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Lokað verður fyrir almennar bókanir í Hálendismiðstöðina í Kerlingarfjöllum yfir vetrarmánuðina en áfram opið fyrir hópabókanir. Rekstrarstjóri segir breytinguna vera hluta af því ferli að sjá hvað virki best fyrir staðinn sem verði mannaður í allan vetur og því starfandi allt árið um kring. Viðskipti innlent 3. október 2026 16:53
Fréttamaður missti af strætónum til baka Hversu einfalt og þægilegt er að taka strætó á Keflavíkurflugvöll nú þegar vagninn ekur farþegum alveg upp að flugstöðinni? Fréttastofa kannar málið í beinni útsendingu og ræðir við gesti og gangandi. Neytendur 2. október 2026 09:45
Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla „Ég varð bara mjög afbrýðisöm að heyra af Ragnhildi Þórðardóttur, betur þekkt sem Ragga nagli, sem einhvern veginn er búin að borga niður sextán milljónir króna af íbúðarláninu sínu sem hún tók fyrir tíu árum síðan,“ segir Helga Arnardóttir fjölmiðlakona en Ragnhildur er búsett í Danmörku. Neytendur 1. október 2026 16:24
Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Stýrivextir munu standa í stað næstu mánuði og verða sex prósent undir lok 2028 samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka. Gert er ráð fyrir að kjarasamningar muni halda þrátt fyrir virkt forsenduákvæði. Viðskipti innlent 29. september 2026 14:17
Hekla innkallar 2.610 bíla Volkswagensamstæðan hefur tilkynnt um innköllun á ákveðnum gerðum Volkswagen, Skoda og Audi ökutækja í varúðarskyni vegna mögulegrar tæringar á bolta, sem festir stýrisvél við undirvagn. Neytendur 28. september 2026 13:43
Lækka verð á þúsund vörum Verð hefur verið lækkað tímabundið á um þúsund vörum í verslunum Bónuss og Hagkaups. Með þessu vilja Hagar, eigandi verslananna, styðja við samstöðu aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda um að ná niður verðbólgu og vöxtum. Neytendur 28. september 2026 10:06
Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Lágvöruverðsverslunin Prís mun ekki verða við ákalli verkalýðshreyfingarinnar um að halda aftur af verðhækkunum vegna verðbólgunnar sem nú geisar. Að sögn Prís er ástæðan einföld, fyrir Prís sé lágt verð ekki tímabundin aðgerð heldur einföld og skýr stefna. Neytendur 25. september 2026 11:16
Hægst á verðhækkun á matvöru Hægst hefur á verðhækkun á matvöru síðustu mánuði eftir miklar hækkanir í byrjun árs. Helstu drifkraftar hækkunar á matvöru eru hækkanir á kjötvöru, mjólk og ferskvöru. Neytendur 24. september 2026 10:39
Krónan frystir verð til áramóta Frá og með deginum í dag frystir Krónan verð á 647 vörum undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. Verðfrystingin stendur til og með 31. desember 2026. Neytendur 24. september 2026 10:02
Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Forsvarsmenn Isavia segja að aldrei hafi fleiri stoppað stutt, eða innan við fimm mínútur, í brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll eins og eftir að gjaldtaka hófst í rennunni. Hlutfallið sé nú 97 prósent en hafi áður verið áttatíu prósent. Athugasemdir Félags íslenskra bifreiðaeigenda verði þó teknar til skoðunar og samtal opnað við félagið um málið. Neytendur 22. september 2026 21:42
Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir stuttan gjaldfrjálsan tíma í brottfararrennu Isavia við Keflavíkurflugvöll og hátt refsigjald vera ósanngirni og okur. Félagið kallar hana „ræningjarennuna“ og skorar á Isavia að stækka hana. Neytendur 22. september 2026 07:15