Ninja er tölvuleikjaviðurnefni Tyler Blevins, en hann hefur gert það gott á streymissíðunni og er eins og stendur með þrjár og hálfa milljón fylgjenda á Twitch sem margir hverjir fylgjast með honum spila tölvuleiki reglulega. Hann er einnig með mikinn fjölda áskrifenda af streymisrás sinni og samkvæmt Forbes bætti hann við um 10-15.000 áskrifendum í kjölfar leiksins með Drake. Það þýðir að nú er hann að græða um 600.000 dali á mánuði í gegnum áskrifendur sína á Twitch, en hann fær þrjá og hálfan dal í vasann fyrir hvern greiðanda í áskrift. Þá eru ekki talin með frjáls framlög sem hann fær gegnum síðuna, né YouTube gróði hans.
Eins og fram kemur í umfjöllun Washington Post hafði Blevins talað um að Drake myndi mögulega spila með sér á næstunni, og hófust leikar á þeim tveimur að spila sem tvíeyki. Drake tilkynnti svo í tísti að þeir væru að spila sem hafði þær afleiðingar í för með sér að áhorfendafjöldinn rauk upp og að Travis Scott og JuJu gengu til liðs við þá.
playing fort nite with @ninjahttps://t.co/OSFbgcfzaZJuJu var ekki lengi að tilkynna löngun sína til að spila með í kjölfar tísts Drake.
— Drizzy (@Drake) March 15, 2018
I’m comin!! @Drake@NinjaDrake hefur síðastliðinn mánuð unnið að nýrri plötu og hefur spilað Fortnite til að slaka á milli vinnustunda í upptökuverinu, sem hann eyðir flestum sínum stundum í um þessar mundir. Hann segir að sig og pródúsenta sína bara stundum þurfa að slappa af með því að spila tölvuleiki, en tekur fram að enginn þeirra sé góður í leiknum.
— JuJu Smith-Schuster (@TeamJuJu) March 15, 2018
Tölvuleikjastreymissíðan Twitch fékk árið 2017 meira en 15 milljón einstaka daglega heimsækjendur, samkvæmt skýrslu fyrirtækisins. Fortnite var annar vinsælasti leikurinn á síðunni, ef talinn er fjöldi mínútna í áhorfi. Hér fyrir neðan má sjá upptöku af streymi fjórmenninganna.