Það kostar ferðamenn milljónir að leigja þyrlu Landhelgisgæslunnar Birgir Olgeirsson skrifar 14. mars 2018 20:45 ÞyrlaLandhelgisgæslunar við Landspítalann. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson „
Við erum að tala um einhverjar milljónir,“ sagði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni fyrr í dag þegar hann var spurður hvað það kosti ferðamenn að leigja þyrlu Landhelgisgæslunnar.DV greindi frá því fyrir skömmu að TF-SYN hefði verið nýtt til að fljúga með stóran hóp á vegum erlends auðmanns í útsýnisflug yfir Jökulsárlón. Tók ferðin um tvær klukkustundir og þurfti sérstaklega að breyta innvolsi þyrlunnar svo hún hentaði undir farþegaflutninga.Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.Georg sagði að slíkar beiðnir til Landhelgisgæslunnar berist frá þyrlufyrirtækjum hér á landi sem bjóða upp á útsýnisflug. Er ástæðan sú að þessir auðkýfingar sem um ræðir mega ekki trygginga vegna fljúga með þyrlum sem knúnar eru áfram með einum mótor. Georg sagði þetta auðvitað ekki gott fyrirkomulag og alls ekki eins og það á að vera. Landhelgisgæslan hefur þó undanfarin ár þurft að leigja og selja allt mögulegt til að halda sig við það fjármagn sem henni er skaffað. Hann sagði verðmiðann á svona útleigu ansi háan en vildi þó ekki nefna neina ákveðna tölu. Hann sagði þó að um einhverjar milljónir væri að ræða. „Svona verkefni eru ekki uppáhaldsverkefni,“ sagði Georg jafnframt. Georg var spurður til hvaða ráðs Landhelgisgæslan myndi bregða ef að útkall myndi berast á meðan þyrla frá Landhelgisgæslunni er í ferðaþjónustuverkefnum. Georg sagði þyrlu ekki leigða út í slíkt verkefni nema önnur sé tiltæk í nágrenninu. Þegar þyrlan er leigð út til ferðamanna er gerður sá fyrirvari að áhöfnin megi yfirgefa ferðamennina fyrirvaralaust og fara í útkall ef til þess kemur.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira