Bannað að hafa opið á sunnudögum Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 11. mars 2018 16:04 Bannið er sett á vegna vinnuverndarsjónarmiða Vísir/Getty
Umdeild lög sem banna Pólverjum að hafa opið í búðum á sunnudögum hafa nú tekið gildi, the Guardian greinir frá þessu. Í dag lokuðu margar af stærri matvöruverslunum í Póllandi í fyrsta skipti síðan frjálslynd verslunarlög voru sett á í upphafi tíunda áratugarins. Verslunarbannið er tilkomið vegna vinnuverndarsjónarmiða en verkalýðshreyfingin Samstaða kallaði eftir því að það yrði sett á til að koma í veg fyrir að vinnuveitendur geti misnotað vinnuafl sitt. Starfsmennirnir eigi rétt á fríi á sunnudögum. Þá eru talsmenn Kaþólsku kirkjunnar hæstánægðir með breytinguna. Nýju lögin verða innleidd í nokkrum skrefum. Út árið 2018 verður verslunareigendum bannað að hafa opið tvo sunnudaga í mánuði. Árið 2019 verður verslunarbann þrjá sunnudaga í mánuði og því næst verður alhliða bann alla sunnudaga árið 2020 með fáeinum undantekningum eins og rétt fyrir jól og páska. Skiptar skoðanir eru á nýju lögunum en mörgum finnst vegið að frelsi neytenda á tímum frjálsra viðskipta. Verslunareigendur óttast breytinguna og segja bannið vera grófa atlögu að verslunarfrelsi. Þeir óttast að óhjákvæmilegar afleiðingar verði atvinnumissir og þá er talið að nýju lögin komi verst niður á nemendum.
Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira