Ólafía komst ekki í gegnum niðurskurð Dagur Lárusson skrifar 30. mars 2018 23:45 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. vísir/Ernir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurð á Ana Inspirationl eftir að hafa leikið á sex höggum yfir pari á sínum öðrum hring í kvöld. Ólafía lék á pari á fyrsta keppnisdegi í gær og fékk þar tvo erni, þar á meðal holu í höggi á þeirri sautjándu. Í kvöld fékk Ólafía aðeins einn fugl, þrjá skolla og tvo tvöfalda skolla á meðan hún fékk par á öllum hinum holunum. Ólafía hefur því lokið keppni á fyrsta stórmóti ársins. Þær Pernilla Lindberg og Sung Hyun Park eru efstar á mótinu á 12 höggum undir pari.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurð á Ana Inspirationl eftir að hafa leikið á sex höggum yfir pari á sínum öðrum hring í kvöld. Ólafía lék á pari á fyrsta keppnisdegi í gær og fékk þar tvo erni, þar á meðal holu í höggi á þeirri sautjándu. Í kvöld fékk Ólafía aðeins einn fugl, þrjá skolla og tvo tvöfalda skolla á meðan hún fékk par á öllum hinum holunum. Ólafía hefur því lokið keppni á fyrsta stórmóti ársins. Þær Pernilla Lindberg og Sung Hyun Park eru efstar á mótinu á 12 höggum undir pari.
Golf Mest lesið Glódísar-æði hefur gripið um sig: „Ég kom til að horfa á Glódísi“ Fótbolti Skip Bayless kærður fyrir kynferðislega áreitni Sport „Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ Handbolti Fékk að halda áfram að spila þrátt fyrir að hafa fengið rautt Fótbolti Gerrard að verða afi Fótbolti Vill fá útlending eða Rúnar Kristins sem næsta landsliðsþjálfara Fótbolti Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd Enski boltinn Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Enski boltinn Anna Kamilla fyrsta snjóbrettakonan frá upphafi Sport Broncos slátraði meisturunum og komst áfram Sport Fleiri fréttir Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira