Patrick Reed var einhvern tímann kallaður „hataðasti maðurinn í golfinu“ og hefur gengið í gegnum ýmislegt sóðalegt á sínum golferli. Hann þykir líka enginn sérstök fyrirmynd og hefur verið sakaður um svindl, þjófnað og ljótan munnsöfnuð auk þess að hann er með fjölskyldu sína út í kuldanum.
Það vantar hins vegar ekki sjálfstraustið í Patrick Reed sem spilaði af miklu öryggi á lokadeginum með alla pressuna á sér. Reed kippti sér heldur ekki mikið upp við að fáir héldu með honum um helgina. Honum virðist vera nokkuð sama um álit annarra á sér og einbeitir sér bara að því að spila gott golf.
Enn eitt dæmið um óvinsældir Reed um þessa helgi var að það var fagnað gríðarlega þegar Rickie Fowler, sem veitti Reed mesta keppni, náði góðu höggi inn á flötina á átjándu en skömmu seinna þegar Reed nánast gulltryggði sigur sinn með flottu höggi inn á flötina á átjándu, þá mátti heyra saumnál detta.
How Patrick Reed became golf's latest villain: https://t.co/oL2hFXfsCjpic.twitter.com/zNnCAFdko2
— Deadspin (@Deadspin) April 9, 2018
Reed var rekinn úr University of Georgia á sínum tíma eftir að hafa verið tekinn fyrir að drekka undir lögaldri og vera með fölsuð skilríki. Aðeins stuttu eftir að hann kom í Augusta State skólann var hann settur í bann frá golfliði skólans fyrir að brjóta reglur liðsins. Hann átti hins vegar eftir að vinna titilinn með Augusta State tvö ár í röð.
Reed hefur einnig verið sakaður um að svindla á golfvellinum með því að spila öðrum boltum en sínum eigin en hann hefur alltaf haldið fram sakleysi sínum í því máli.
Það eru líka þesssar hrokafullu yfirlýsingar sem hafa unnið gegn honum. Árið 2014 sagðist hann vera einn af fimm bestu í heimi þrátt fyrir að hafa aldrei unnið risamót. Hann hefur líka látið út sér miður falleg og fordómafull orð um samkynhneigða.
Reed er heldur ekki vinsæll innan fjölskyldu sinnar. Yngri systir hann kom fram opinberlega og kallaði hann sjálfselskan og hræðilegan ókunnugan mann og þá hefur hann slitið öllum samskiptum við móður sína og föður.
Patrick Reed's life just changed forever.
He will always be a Masters champion. pic.twitter.com/oV8vDChJKL
— PGA TOUR (@PGATOUR) April 8, 2018
Reed hefur unnið sér inn virðingu með frammistöðu sinni á Mastersmótinu um helgina en það er enginn vafi að áhorfendur á Augusta vellinum vildu miklu frekar að Rickie Fowler, Rory McIlroy eða Jordan Spieth myndu vinna Mastersmótið í ár.
Golf bad boy Patrick Reed celebrates #Masters win with wife who used to be his caddie https://t.co/UACnNPekvfpic.twitter.com/byCImweZXh
— Natalie Evans (@NatalieEvans85) April 9, 2018