Kona í sjálfheldu á Ingólfsfjalli Kjartan Kjartansson skrifar 6. apríl 2018 16:29 Ingólfsfjall austan Hveragerðis. Vísir/E.Ól.
Fjórar björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út nú rétt fyrir klukkan fjögur vegna konu sem er í sjálfheldu í Ingólfsfjalli. Er talið að setja þurfi upp sérstakan búnað til björgunar í fjalllendi þar sem konan er staðsett í brattlendi. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir við Vísi að nánast sé búið að staðsetja konuna með hjálp upplýsinga frá henni sjálfri og dróna sem var fenginn frá Selfossi. Ágætis ástand sé á konunni sem náði sjálf að láta vita af sér. Hún hafi ekki treyst sér sjálf niður af þeim stað sem hún var komin á. Hún er talin föst í brattlendi austanmegin í fjallinu, nærri bænum Alviðru. Davíð Már segir að verið sé að meta aðstæður og bíða eftir frekari mannafla og búnaði fyrir björgunaraðgerðir. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kom fram að fyrstu björgunarsveitarmennirnir hefðu verið komnir á vettvang rétt upp úr fjögur ásamt dróna.Fréttin hefur verið uppfærð.
Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Sjá meira