Skoðun

Kæra Katrín Jakobsdóttir

Katrín Sif Sigurgeirsdóttir og Ella Björg Rögnvaldsdóttir skrifar
Megum við spyrja þig eftirfarandi spurninga sem þú spurðir sjálf að fyrir 10 árum síðan. Við erum nefnilega stödd á nánast sama stað í dag, árið 2018. 

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Fyrsta verkfall íslenskra ljósmæðra frá upphafi blasir við á morgun og spurning mín til hæstv. ráðherra snýst um framtíðarlausnir á þessari deilu, langtímalausnir sem ríkisvaldið ber ábyrgð á. Ef við rifjum upp staðreyndirnar þá er það svo að undanskildum dýralæknum uppfyllir engin háskólastétt jafnmiklar menntunarkröfur og ljósmæður til að geta starfað við fag sitt, sex ára háskólanám. Samt eru ljósmæður í sjöunda neðsta sæti meðal 24 BHM-félaga í launasetningu. Til að fá námið metið að verðleikum í samræmi við aðrar stéttir með sambærilega menntun hjá ríkinu þurfa meðalgrunnlaun ljósmæðra að hækka um 24–25% og það er einungis leiðrétting á því misrétti sem ljósmæður hafa þurft að búa við í fjölda ára, misrétti sem aðrar fagstéttir hafa viðurkennt. Kostnaður við slíka launaleiðréttingu mun kosta ríkið um 10 millj. á mánuði. Sama ríkisvald hikar ekki við að eyða 100 millj. af fé íslenskra skattborgara í heræfinguna Norðurvíking sem nú stendur yfir. Ólíkari iðju en heræfingar og að taka á móti nýju lífi í þennan heim get ég vart ímyndað mér og ólíkt heræfingum spara störf ljósmæðra gríðarlegar fjárhæðir fyrir ríkisvaldið. Yfirseta ljósmæðra, heimaþjónusta og aðhlynning með tilheyrandi styttri sængurlegu sparar ríkissjóði miklar upphæðir fyrir utan að tryggja mæðravernd á heimsmælikvarða. Samkvæmt bjartsýnustu spám munu 44% stéttarinnar fara á eftirlaun á næstu tíu árum — hver og einn einasti vinnukraftur þessarar stéttar er því sérlega dýrmætur — og stefnir í fullkomið óefni.

Ég spyr því í ljósi þess að ljósmæður eru einungis konur og augljóslega beittar mismunun í launum: Með hvaða hætti hyggst ríkisstjórnin efna þau loforð stjórnarsáttmálans þar sem skýrt er kveðið á um að endurmeta beri sérstaklega kjör kvenna hjá hinu opinbera, einkum þeirra stétta þar sem konur eru í miklum meiri hluta? Hvaða umboð hefur ríkisstjórnin veitt samninganefnd ríkisins um að leiðrétta kjör ljósmæðra? Hvers vegna gengur svo hægt og illa? Hvers vegna þarf fjöldi verðandi mæðra að skrifa opið bréf í dag og krefjast umbóta og hvernig ætlar ríkisstjórnin að tryggja að ekki komi til 44% brottfalls úr stétt ljósmæðra í náinni framtíð? [Lófatak á þingpöllum.]

Virðingarfyllst, 

Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, ljósmóðir og Ella Björg Rögnvaldsdóttir, ljósmóðir




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×