Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri Teatime, segir í samtali við Markaðinn að nýsköpunarsjóðirnir sem gengu í hluthafahópinn nú séu á meðal þeirra stærstu í Evrópu og séu einnig umsvifamiklir í Bandaríkjunum. „Meirihluti Teatime er enn í eigu Íslendinga,“ segir hann og bætir við að félagið hafi einungis tvisvar fengið fjármagn frá fjárfestum. Fjárfestar erlendis vilji ekki taka of stóra sneið fyrst um sinn því það dragi úr hvata frumkvöðlanna til að efla félagið.
Aðalfjárfestirinn í hlutafjáraukningunni er Index Ventures, fjárfestingarsjóður sem hefur fjárfest í leikjafyrirtækjum á borð við King, Roblox og Supercell. Fjárfestingarsjóðurinn Atomico, sem hefur meðal annars fjárfest í leikjafyrirtækjunum Supercell, Rovio og Bossa Studios, tekur einnig þátt í hlutafjáraukningunni. Í kjölfarið settust Guzman Diaz frá Index Ventures, Mattias Ljungman frá Atomico og Davíð Helgason, stofnandi Unity Technologies, í stjórn Teatime.
Sjá einnig: Ris og fall Plain Vanilla
Þorsteinn segir að þeir hafi verið í þeim sporum að geta valið og hafnað hverjir tækju þátt í hlutafjáraukningunni. „Við fengum ótrúlegan meðbyr frá þeim sem starfa í bransanum, ég hef ekki fundið fyrir öðru eins.“ Hann telur að það helgist af því hve góð hugmyndin sé og að þeir hafi sýnt fram á í störfum sínum fyrir Plain Vanilla að teymið geti framleitt vöru.

Teatime hyggst nota fjármagnið frá nýju fjárfestunum til að fjölga starfsfólki sínu hér á landi, sérstaklega forriturum, og þróa samskiptatækni sína enn frekar. Til að mynda til að bjóða upp á samþættingu hennar við aðra leikjaframleiðendur. Þorsteinn segir að starfsmennirnir séu nú 13 og að hann vilji ekki að þeir verði mikið fleiri en 20, eins og sakir standa. „Eitt af því sem erfitt var að takast á við hjá Plain Vanilla var hve hratt félagið stækkaði,“ segir hann.
Þorsteinn segir að TeaTime sé að þróa tækni sem geri fólki kleift að vera „í persónulegri samskiptum þegar það er að spila leiki“. Hugmyndin sé að þegar fólk spili tölvuleiki á farsíma sé það einkum eitt að spila eða á móti öðrum en aldrei í alvöru samskiptum við manneskju. Lausn TeaTime geri það að verkum að hægt sé að vera í beinum samskiptum við aðra á meðan keppt er í tölvuleik. „Aðalverkefnið verður að búa til þessa tækni. En við sjáum fram á að gera bæði okkar eigin leiki og vinna með öðrum leikjaframleiðendum,“ segir hann.