Fyrsta konan til að gegna stöðu framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. júní 2018 14:56 María Jóna Magnúsdóttir. rrrfffkkkk
María Jóna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins en hún tekur við starfinu af Özuri Lárussyni sem lætur senn af störfum. María Jóna er fyrsta konan til að gegna stöðu framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins, sem eru samtök atvinnurekenda í sölu ökutækja, vöru og þjónustu þeim tengdum. Í dag eru 155 aðildafélagar að sambandinu þ.e. almenn bílaverksæði, bílasölur, bílaumboð, hjólbarðaverkstæði, málningar- og réttingaverkstæði, ryðvarnarstöðvar, smurstöðvar, varahlutasalar og aðrir þjónustuaðilar í bílgreininni. Hér á landi starfa um fjögur þúsund manns í bílgreininni. Í samtali við Vísi segir María Jóna að nýja starfið leggist vel í hana. „Þetta er mjög spennandi og mjög krefjandi verkefni sem leggst bara mjög vel í mig, en ég þekki bílamarkaðinn ágætlega þar sem ég hef verið þar lengi,“ segir María Jóna en hún hefur starfað í bílgreininni í tæpa tvo áratugi, nú síðast sem framkvæmdastjóri viðskiptatengsla og síðar framkvæmdastjóri sölusviðs Heklu. Þá var hún áður yfirmaður viðskiptatengsla hjá Toyota ásamt því sem hún var sérfræðingur og verkefnastjóri við innleiðingu straumlínustjórnunar hjá Arion banka. María útskrifaðist með MS.c. í fjármálum og stefnumótun frá Copenhagen Business School árið 2012 og áður með BS.c í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. María hefur þegar hafið störf hjá Bílgreinasambandinu.
Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Sjá meira