

Kjaramál heilbrigðisstétta
Íslenskum stjórnvöldum virðist ofviða að semja um kaup og kjör við heilbrigðisstéttir. Nánast undantekningarlaust þurfa heilbrigðisstéttir að grípa til aðgerða eins og verkfalla til þess að knýja á um að gengið sé til samninga við þær. Hvers vegna er ástandið með þessum hætti og hvers vegna eru Íslendingar alltaf að grípa til þessara meingölluðu aðferða eins og fjármálaráðherra segir? Getur ekki verið að skorti á stefnu íslenskra stjórnvalda í heilbrigðismálum, mönnunar- og launamálum heilbrigðisstétta, kynbundnum launamun innan kerfisins og skorti á skýrri starfsmannastefnu sé að einhverju leyti um að kenna?
Rétt er að minna á að íslenska ríkið er nánast eini vinnuveitandi flestra heilbrigðismenntaðra kvennastétta. Á Íslandi hefur það sjaldan átt upp á pallborðið að kvennastéttum sem sinna umönnunarstörfum séu greidd laun í samræmi við ábyrgð í starfi. Að þessu leyti hefur jafnréttisbaráttan náð litlum árangri. Markaðslögmál þar sem samspil framboðs og eftirspurnar ræður launum og launaþróun stétta virðist ekki gilda hjá hinu opinbera þegar kemur að kvennastéttum.
Fjármálaráðherra, fjármálaráðuneytinu og Samtökum atvinnulífsins verður tíðrætt um að launaþróun þurfi að vera sambærileg milli stétta. Þessi aðgerð myndi ganga ef allir væru með sambærileg laun í upphafi samanburðar eða hlutlægt mat lægi á bak við launasetningu, en huglægt mat og gamlar hefðir um launasetningu karla og kvenna virðast ráða meiru. Þetta væri einnig gagnleg aðferð ef sama upphafsár væri alltaf notað í slíkum útreikningum.
Í kjarasamningum undanfarinna ára hafa íslensk stjórnvöld notast við upphafspunkt sem hentar hverju sinni. Árin 2006 og 2013 hafa verið notuð. SALEK-samkomulag og kjarasamningar 2015 gengu út frá launaþróun 2013. Þann 3. júlí gaf fjármálaráðuneytið út yfirlýsingu um launaþróun ljósmæðra og var árið 2007 þá notað sem upphafsár, væntanlega af því að það hentaði betur. Það að skoða bara launaþróun gefur skakka mynd ef heildarmyndin eða hvað liggur á bak við er ekki skoðað.
Launaþróun upp á 30% skilar færri krónum til launamanns sem er með 400 þúsund krónur í laun en þess sem er með 700 þúsund krónur. Það er það sem ljósmæður, hjúkrunarfræðingar og fleiri heilbrigðismenntaðar kvennastéttir horfa til þegar verið er að meta launahækkanir hjá hinu opinbera. Til að mynda hafa dagvinnulaun hjúkrunarfræðinga hækkað um 133 þúsund krónur frá árslokum 2014 til ársloka 2017 á meðan t.d. kjararáð, læknar og skurðlæknar hafa fengið um 300 þúsund króna hækkun á dagvinnulaun að meðaltali, ofan á laun sem fyrir voru mun hærri en hjúkrunarfræðinga.
Ljósmæður hafa notið lakari launaþróunar en aðrir opinberir starfsmenn bæði hvað varðar prósentur og krónur, það sýna gögn fjármálaráðuneytisins. Reikningsæfingar eins og fjármálaráðuneytið grípur til í yfirlýsingu sinni þann 3. júlí breyta litlu þar um. Það að lengja tímabilið sem skoðað er eða notast við upphafspunkt sem ekki hefur verið notaður í neinum samanburði gagnast lítið.
Samtal ALLRA aðila á vinnumarkaði um það hvernig eigi að meta störf, menntun, ábyrgð, álag og umfang væri ágætis byrjun til þess að þróa nýjar aðferðir til þess að leiða kjaradeildur til lykta á Íslandi. Síðan mætti reikna launaþróun út frá því. Vilji til þess að taka slíkt samtal virðist ekki vera til staðar, í það minnsta hefur hjúkrunarfræðingum ekki verið boðið í þá umræðu en þeir eru alltaf reiðubúnir til samtals.
Skoðun

Þétting í þágu hverra?
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu
Þórður Snær Júlíusson skrifar

POTS er ekki tískubylgja
Hanna Birna Valdimarsdóttir,Hugrún Vignisdóttir skrifar

Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024
Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson skrifar

Hvað er verið að leiðrétta?
Ægir Örn Arnarson skrifar

Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið
Arnar Þór Jónsson skrifar

75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu
Clara Ganslandt skrifar

Sigurður Ingi í mikilli mótsögn við sjálfan sig!
Magnús Guðmundsson skrifar

Vetrarvirkjanir
Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar

Yfirgnæfandi meirihluti vill þjóðaratkvæði
Jón Steindór Valdimarsson skrifar

Smábátar eru framtíðin, segir David Attenborough
Kjartan Sveinsson skrifar

Leiðrétting veiðigjalda mun skila sér í bættum innviðum
Arna Lára Jónsdóttir skrifar

Hvað er verið að leiðrétta?
Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir skrifar

Efnahagslegur hagvöxtur þýðir ekki endilega samfélagslegur hagvöxtur
Davíð Routley skrifar

Börn innan seilingar
Árni Guðmundsson skrifar

Hallarekstur í Hafnarfirði
Jón Ingi Hákonarson skrifar

Hvers konar Evrópuríki viljum við vera?
Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar

Orðskrípið sem bjarga á veiðigjaldinu
Ólafur Adolfsson skrifar

Túlkun er ekkert að fara – en hvað ætlum við að gera með hana?
Birna Ragnheiðardóttir Imsland skrifar

Hagsmunir heildarinnar - Kafli tvö: Eiskrandi kröfur
Hannes Örn Blandon skrifar

Palestína er að verja sig, ekki öfugt
Stefán Guðbrandsson skrifar

Óvandaður og einhliða fréttaflutningur RÚV af stríðinu á Gaza
Birgir Finnsson skrifar

Lýðræði á ystu nöf: Hver er afstaða unga fólksins?
Jonas Hammer skrifar

Hvað ef ég hjóla bara í vinnuna?
Eiríkur Búi Halldórsson skrifar

Litlu ljósin á Gaza
Guðbrandur Einarsson skrifar

Ekki leiðrétting heldur skattahækkun: Afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýr
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Staðreyndir eða „mér finnst“
Birta Karen Tryggvadóttir skrifar

Fjármagna áfram hernað Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar