Veiði

Mesta veiðin í Þverá og Kjarrá

Karl Lúðvíksson skrifar
Landssamband Veiðifélaga birti veiðitölur úr Laxveiðiánum í vikunni og aþð virðist sem Þverá og Kjarrá séu að taka forskot á hinar árnar.

Veiðin í Þverá og Kjarrá hefur verið afar góð í sumar og mikill kraftur í göngunum í ána. Heildarveiðin í ánum er komin í 843 laxa en það voru tölur frá síðasta miðvikudagkvöldi. Veiðin hefur síðan verið mjög góð og samkvæmt okkar heimildum gæti áin farið yfir 1.000 laxa í dag. Mesta veiðin á stöng er sem áður í Urriðafossi í Þjórsá en veiðin þar hefur verið afskaplega góð og og eru komnir 577 laxar á land þar og ekkert lát á veiðinni.

Veiðin í Borgarfjarðaránum hefur heilt yfir verið góð en kannski síst í Langá. Það er ekki vegna skorts á laxi en áin hefur verið í þreföldu vatni frá 25.júní og var fyrst að ná góðri vatnsstöðu í gær. Svæðin neðan Skugga eru full af laxi sem loksins núna fer að ganga upp og þá á eftir að lifna yfir svæðunum fyrir ofan Skugga. Veiðin á Norðurlandi virðist víða vera á pari við sama tíma í fyrra svo heilt yfir virðist þetta sumar vera að stefna í góða átt.

Topp fimm árnar í síðustu viku voru:

1. Þverár og Kjarrá 842 laxar

2.Urriðafoss 577 laxar

3. Norðurá 557 laxar

4. Miðfjarðará 320 laxar

5. Haffjarðará 320 laxar

Listann í heild sinni má finna á www.angling.is





×