Valsmenn á sama stað á sama tíma og í fyrra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2018 15:00 Valsmenn fagna í sumar eins og í fyrra. vísir/anton
Valsmenn unnu sinn sjöunda sigur í Pepsi-deildinni í gær og eru með fimm stiga forystu fyrir lokaleik umferðarinnar sem er á milli FH og Stjörnunnar í kvöld. Það er athyglisvert að bera árangur Valsliðsins í dag saman við árangur liðsins á sama tíma í fyrra. Valsmenn hafa ekki varið Íslandsmeistaratitil síðan 1967 en þessi góða byrjun í ár gefur ástæðu til að halda að sú bið endi í haust. Það sem er sérstakt er að Valsmenn eru næstum því á nákvæmlega sama stað og fyrir ári síðan. Fyrir einu ári síðan þá voru Valsmenn einnig með sjö sigra, þrjú jafntefli og eitt tap eftir fyrstu ellefu leikina. Markatalan var 17-9 þá eða átta mörk í plús. Markatala Valsliðsins í ár eða 19-10 eða einu marki betri. Valsmenn hafa skorað oftar tvö mörk eða fleiri í sumar og hafa einnig haldið oftar hreinu í upphafi móts. Bæði árin tapaði Valsliðið bara einum leik í fyrri umferðinni en bæði árin var sá leikur í Grindavík og tapaðist með minnsta mun. Valur tapaði 1-0 fyrir Grindavík sumarið 2017 og svo 2-1 í Grindavík í ár. Valsmenn fengu reyndar „bara“ sex stig af fimmtán mögulegum í fyrstu fimm umferðunum í sumar en unnu sinn sjötta deildarleik í röð í gær. Fyrir ári síðan þá voru Valsmenn með fjórum stigum meira eftir fyrstu fimm umferðirnar og unnu svo fjóra af sex (plús tvö jafntefli) í umferðum sex til ellefu. Hér fyrir neðan má sjá samanburð á fyrri umferðinni á þessum tveimur tímabilum. Það er magnað að sjá hversu litlu munar.Valur í 1. til 11. umferð 2017 1. sæti með 24 stig 3 stiga forysta 7 sigrar 3 jafntefli 1 tap +8 í markatölu 17 mörk skoruð 9 mörk fengin á sig 3 leikir haldið hreinu 5 leikir með tvö mörk eða fleiriValur í 1. til 11. umferð 2018 1. sæti með 24 stig 2-5 stiga forysta 7 sigrar 3 jafntefli 1 tap +9 í markatölu 19 mörk skoruð 10 mörk fengin á sig 4 leikir haldið hreinu 8 leikir með tvö mörk eða fleiri
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira