Hvað gerist eiginlega í hálfleik hjá Fjölnismönnum? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. ágúst 2018 16:00 Ólafur Páll Snorrason þjálfari Fjölnis vísir/bára
Fjölnismenn eru aðeins einu stigi frá fallsæti í Pepsi-deild karla eftir fjórtán umferðir en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum sínum í deildinni. Það er einkum fimmtán mínútna kafli í upphafi síðari hálfleiks sem er að fara afar illa með Grafarvogspilta í sumar. Fjölnismenn þurfa því örugglega að fara endurskoða hvað þeir gera í hálfleiknum því leikur liðsins hrynur eftir að þeir koma til baka eftir hálfleiksræðu Ólafs Páls Snorrasonar. Markatala Fjölnis á 46. til 60. mínútu leikjanna er níu mörk í mínus samkvæmt tölfræði InStat. Fjölnismenn hafa ekki ennþá skorað á þessum kafla leikjanna og hafa jafnframt fengið á sig níu mörk. Öll hin ellefu lið deildarinnar hafa skorað á þessum fimmtán mínútum seinni hálfleiks og ekkert annað lið í deildinni hefur fengið á sig fleiri en fjögur mörk á þessum hluta leiksins. Markatala Fjölnis er því sjö mörkum verri en hjá næstversta liðinu sem er Keflavík. Hálfleiksræður Ólafs H. Kristjánssonar hjá FH ganga mjög vel því FH er með markatöluna 8-1 á fyrstu fimmtán mínútum seinni hálfleiks. Markatalan hjá Stjörnunni er líka mjög góð eftir hálfleiksræður Rúnars Páls Sigmundssonar.Markatala liðanna í Pepsi-deildinni fyrstu fimmtán mínútur í seinni hálfleik: +7 FH (8-1) +5 Stjarnan (7-2) +2 Valur (2-0) +1 ÍBV (4-3) = Grindavík (2-2) = KR (2-2) -1 Breiðablik (2-3) -1 KA (3-4) -1 Víkingur (3-4) -1 Fylkir (1-2) -2 Keflavík (1-3) -9 Fjölnir (0-9)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira