Sjáðu Garðar skalla FH-inga út úr bikarnum í síðasta bikarleik Stjörnunnar og FH Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2018 12:00 Garðar Jóhannsson fagnar einu marka sinna í þessum leik fyrir fimm árum. Mynd/S2Sport
Stjarnan tekur í kvöld á móti FH í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta en í boði er sæti í úrslitaleiknum á Laugardalsvellinum 15. september. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport alveg eins og hinn undanúrslitaleikurinn á milli Blika og Ólafsvíkinga á morgun. Stjarnan og FH hafa spilað marga rosalega deildarleiki á síðustu árum en það eru liðin fimm ár síðan að Stjarnan og FH mættust síðast í bikarnum. Síðasti bikarleikur nágrannanna var í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar sem þá hét Borgunarbikarinn. Leikurinn fór fram á Samsung vellinum í Garðabæ alveg eins og leikurinn í kvöld en FH-ingar vona að úrslitin verði allt önnur. FH komst þá reyndar í 1-0 í upphafi leiks með marki frá Birni Daníel Sverrissyni en Stjarnan vann leikinn á endanum 3-1. Garðar Jóhannsson var maður leiksins en hann skoraði öll þrjú mörk Garðbæinga í leiknum þar tvö þau fyrstu með fjögurra mínútna millibili í fyrri hálfleiknum. Mörk Garðars komu á 33. mínútu, 37. mínútu og 90. mínútu leiksins. Hann skoraði öll mörkin sín með skalla. Þetta var ár Garðars í bikarnum því hann skoraði einnig í sigurleikjum Stjörnunnar í átta liða (3-2 sigur á Fylki) og undanúrslitunum (2-1 sigur á KR). Stjarnan tapaði hinsvegar í vítakeppni í bikaúrslitaleiknum á móti Fram og þar skaut Garðar í slána úr sinni vítaspyrnu. Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá þessum síðasta bikarleik Stjörnunnar og FH fyrir fimm árum síðan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér Sjá meira