„Ég er að hósta mikið, svo þú verður að afsaka mig,“ segir Patrick Pedersen eftir sigurinn á Grindvíkingum í kvöld. Hann skoraði þrennu og lék frábærlega í 4-0 sigri Vals á Grindvíkingum í 16.umferð Pepsi-deildar karla í kvöld.
Daninn var aftur á móti veikur í kvöld og var það ástæðan fyrir því að honum var skipt út af um miðjan síðari hálfleik.
„Þetta var frábær leikur hjá okkur í kvöld og alltaf gaman að skora þrennu. Það mikilvægasta er reyndar að við náðum í þrjú stig. Ég hefði reyndar getað skorað fleiri mörk í kvöld og fékk nokkur góð færi.“
Hann segist hafa haft mjög gott af því að vera tekinn út af undir miðjan seinni hálfleik.
„Þetta verður erfiður leikur á fimmtudaginn, en við eigum heldur betur góðan möguleika. Staðna er bara 1-0 og allt getur gerst.“
Patrick hefur skorað 10 mörk í Pepsi-deildinni í sumar.
„Ég er mjög ánægður með tímabilið hjá mér og mér finnst vera komast í mitt besta form.“
Veikur Patrick Pedersen skoraði þrennu gegn Grindvíkingum

Tengdar fréttir

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - Grindavík 4-0 │Patrick sá um Grindvíkinga
Valur rúllaði yfir Grindavík á Origo-vellinum þar sem Patrick Pedersen var í stuði.