Stuðningsmenn Barcelona SC fórust í bílslysi Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. ágúst 2018 10:56 Talið er að ökumaður rútunnar hafi reynt framúrakstur þegar slysið varð. ECU911
Hið minnsta tólf stuðningsmenn ekvadorska knattspyrnufélagsins Barcelona SC eru látnir eftir bílveltu í gærkvöld. Þar að auki eru um 30 slasaðir. Stuðningsmennirnir höfðu ferðast með rútu eftir leik félagsins gegn Deportivo Cuenca, sem leikur heimaleiki sína í borginni Cuenca. Tildrög slyssins eru óljós á þessari stundu. Samgönguyfirvöld landsins segja þó að ekkert hafi verið að rútunni og að hún hafi flogið í gegnum ástandsskoðun í febrúar síðastliðnum. Vitni greina frá því í samtali við þarlenda miðla að ökumaður rútunnar hafi misst stjórn á bílnum þegar hann reyndi framúrakstur á miklum hraða. Opinberar tölur gefa til kynna að um sjö einstaklingar láti lífið daglega í Ekvador í umferðarslysum. Um 96% slysanna má rekja til mannlegra mistaka að sögn breska ríkisútvarpsins. Barcelona SC er eitt vinsælasta knattspyrnuliðið í Ekvador og eru stuðningsmenn þess rómaðir fyrir kröftugan stuðning á áhorfendapöllunum. Stjórnarformaður liðsins segir að slysið sé mikið áfall og að komið verði upp kapellu í leikvangi Barcelona SC þar sem stuðningsmannanna verður minnst.Knattspyrnusamband Ekvadors, auk fjölda félagsliða, hafa vottað Barcelona SC, stuðningsmönnum þess og aðstandendum hinna látnu, samúð sína.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira