Blautt og hlýtt Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. ágúst 2018 06:51 Létt regnföt ættu að vera rétti klænaðurinn í dag. VÍSIR/EYÞÓR
Rigning mun setja svip á veðrið á nær öllu landinu næstu daga. Engu að síður má búast við ágætis hlýindum, en samkvæmt spákortum Veðurstofunnar gæti hitinn náð 20 stigum í dag. Gert er ráð fyrir suðaustlægri átt á landinu í dag, vindur verður yfirleitt fremur hægur en allra syðst gæti orðið vart við hvassviðri. Einnig verður skýjað að mestu sunnan- og vestanlands og víðast þurrt, en mestar líkur á einhverri vætu við suðvesturströndina í dag. Þá verður bjart að mestu norðan- og austanlands, en þó líkur á stöku síðdegisskúrum, einkum í innsveitum. Sem fyrr segir verður fremur hlýtt í veðri í dag og gæti hitinn náð allt að 20 stigum, þá sérstaklega inn til landsins. Það verður hins vegar svalara á morgun og þá einna helst á Suðurlandi. Þar mun að sama skapi fara að rigna og bæta í vind þegar líður á daginn. Einnig mun þykkna smám saman upp fyrir norðan. Vindur verður þó orðinn hægari annað kvöld og gera má ráð fyrir rigningu í flestum landshlutum. Hitinn mun líklega hæst fara í um 15 gráður á morgun. Þá er búist við næstu lægð um miðja vikuna, með tilheyrandi roki og rigningu.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Austlæg átt, 8-15 m/s, hvassast syðst og rigning um landið sunnanvert, en lengst af þurrt fyrir norðan. Dregur úr vindi og úrkomu síðdegis. Hiti 10 til 15 stig.Á miðvikudag:Norðaustlæg átt, 5-13 m/s, víða dálítil rigning. Hiti 9 til 14 stig.Á fimmtudag:Norðlæg eða breytileg átt 5-10 m/s. Væta með köflum fyrir norðan, en bjart að mestu syðra. Hiti 8 til 16 stig, mildast syðst.Á föstudag:Gengur í norðan 8-15 m/s með rigningu í flestum landshlutum. Léttir til sunnanlands um kvöldið. Hiti 7 til 14 stig, mildast sunnanlands.Á laugardag:Norðvestlæg átt og rigning norðantil á landinu og hiti 5 til 10 stig, en bjartviðri sunnanlands og hiti 9 til 15 stig.Á sunnudag:Snýst í sunnanátt með rigningu, en léttir til norðan- og austanlands. Hiti 8 til 15 stig, mildast norðaustanlands.
Veður Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira