Selfoss með dramatískan sigur gegn FH og Haukar höfðu betur gegn Val Anton Ingi Leifsson skrifar 21. ágúst 2018 22:30 Læðan skoraði níu mörk gegn gömlu félögunum. vísir/bára
Haukar og Selfoss byrja Hafnarfjarðarmótið en leikið er á Ásvöllum í minningu séra Friðriks Friðikssonar sem hefði orðið 150 ára. Í fyrri leik dagsins mættust Haukar og Valur en bæði lið hafa styrkt sig í sumar, Valur þó meira og fengu þeir meðal annars Agnar Smára Jónsson og Róbert Aron Hostert frá Íslands- og bikarmeisturum ÍBV. Eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik, 16-15, unnu Haukarnir fjögurra marka sigur, 35-31. Atl Már Báruson átti góðan leik og skoraði níu mörk en Heimir Óli Heimisson skoraði sjö. Ásgeir Örn Hallgrímsson er kominn heim úr atvinnumennsku og átti flottan leik fyrir Hauka en hann skoraði fjögur mörk í kvöld. Í liði Vals var það Agnar Smári sem var markahæstur. Hann skoraði sjö mörk en næstur kom Magnús Óli Magnússon með sex og þeir Úlfur Þórðarson og Róbert Hostert með fimm hvor. Í síðari leik kvöldsins kastaði FH frá sér þægilegri forystu gegn Selfyssingum og lokatölur 29-28 sigur Selfoss, en þessi lið mættust í eftirminnalegu undanúrslitaeinvígi í Olís-deildinni á síðustu lektíð. FH náði upp góðu forskoti í fyrri hálfleik en þeir breyttu stöðunni úr 10-10 í 16-10 og leiddu 17-11 í hálfleik. Í síðari hluta síðari hálfleiks galopnaðist vörn FH trekk í trekk og Selfyssingar skoruðu að vild. Síðustu mínúturnar voru spennandi. Einar Rafn Eiðsson jafnaði metin í 28-28 en Guðni Ingvarsson skoraði sigurmarkið af línunni í þann mund sem flautan gall og eins marks sigur Selfyssinga, 29-28, í frábærri endurkomu. Ásbjörn Friðriksson skoraði níu mörk fyrir FH og næstur kom Einar Rafn Eiðsson með átta. Í liði Selfyssinga var hetjan, Guðni Ingvarsson, markahæstur með átta og þeir Sverrir Pálsson og Hergeir Grímsson gerðu fimm hvor.
Olís-deild karla Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Baulað á Trump í New York Körfubolti „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira