Minni fyrirtæki betur búin undir áföll en áður Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar 12. september 2018 08:00 Tvöföldun var í vexti fyrirtækja er byggja húsnæði. Vísir/Eyþór
Fjárhagur lítilla og meðalstórra fyrirtækja hefur batnað verulega á síðustu árum og þannig skapað svigrúm til að takast á við framtíðaráföll. Þó er enn hægt að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja af þessari stærðargráðu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um efnahagslegt mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem var unnin af Reykjavík Economics fyrir Íslandsbanka. „Kjarninn í þessu er að þessi fyrirtæki standa miklu betur en þau hafa gert lengi og þeim hefur farið fjölgandi,“ segir Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur hjá Reykjavík Economics, í samtali við Markaðinn. „Þar með eru mörg af minni fyrirtækjum landsins betur í stakk búin til að takast á við efnahagsleg áföll ef til þeirra skyldi koma.“ Í úttektinni er miðað við þrengri skilgreiningu á litlum og meðalstórum fyrirtækjum, hér eftir nefnd LMF, en tíðkast annars staðar í Evrópu. Miðað er við að LMF séu fyrirtæki sem hafa ársveltu frá 5 til 500 milljóna króna á ári. Verulega hefur dregið úr skuldum LMF frá árinu 2008 í öllum stærðarflokkum nema hjá þeim fyrirtækjum sem velta á bilinu 100 til 250 milljónum króna og hjá minnstu fyrirtækjunum. Í flokki fyrirtækja með 100 til 250 milljóna króna veltu jukust skuldir árið 2016, einkum hjá fyrirtækjum í heild- og smásölu. Fyrirtæki í einkennandi greinum ferðaþjónustu eru skuldsettari en önnur fyrirtæki. „Skuldsetning ferðaþjónustufyrirtækja skýrist af miklum fjárfestingum sem óhjákvæmilega fylgja hröðum vexti. Þrátt fyrir það hefur skuldsetning þeirra lækkað verulega og nálgast það sem tíðkast í öðrum greinum,“ segir Magnús. Á síðustu árum hefur byggst upp eigið fé í öllum stærðarflokkum LMF en athygli vekur að í tilfelli meðalstórra fyrirtækja, sem hafa veltu á bilinu 250 til 500 milljónir króna, hefur eigið fé minnkað frá árinu 2013 til ársins 2016. Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna.Arðsemi smærri fyrirtækja betri Á sama tíma og eiginfjárhlutfall LMF hefur batnað hefur arðsemi eiginfjár, mæld sem hlutfall hreinna rekstrartekna af eignum, jafnframt aukist. Hún er einna mest hjá fyrirtækjum sem eru með veltu á milli 10 og 100 milljóna króna á ári, eða um 6 til 7 prósent samkvæmt gögnum frá árinu 2016. Arðsemi stórra fyrirtækja er aðeins um tvö prósent. „Arðsemi stærstu fyrirtækjanna er enn slök þótt hún hafi batnað frá hruni, sérstaklega í ljósi þess að þá á eftir að taka tillit til fjármagnskostnaðar og skatta,“ segir Magnús. Fjöldi LMF á hverja þúsund íbúa hefur farið vaxandi í öllum landshlutum á árabilinu 2008 til 2016 en Magnús segir að það sé ákveðin vísbending um frumkvöðlavirkni. „Vestfirðir skera sig þarna nokkuð úr. Það má rekja til þess að fjöldi nýrra fyrirtækja hefur verið stofnaður á svæðinu á sama tíma og íbúum hefur fækkað lítillega,“ segir Magnús.Viðskiptakostnaður hár Þá er viðskiptakostnaður við stofnun einkahlutafélags nokkuð hár á Íslandi í samanburði við mörg önnur vestræn lönd. Bent er á að Alþjóðabankinn hafi metið það svo að Ísland sé í 55. sæti á meðal þjóða heims þegar kemur að því hversu auðvelt er að hefja rekstur fyrirtækis. Varðandi viðskiptaumhverfi er Ísland í 23. sæti. „Við getum staðið okkur betur í að hlúa að þessum fyrirtækum sem eiga sér færri talsmenn en stærri fyrirtæki og eru ekki jafn mikið í sviðsljósinu.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Fleiri fréttir María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records Sjá meira