Portúgal vann 1-0 sigur á Ítalíu í fyrsta leik liðsins í Þjóðadeildinni en bæði lið leika í A-deildinni í riðli þrjú.
Cristiano Ronaldo var ekki í leikmannahópi Portúgal en hann fékk frí. Ef marka má samfélagsmiðla hans nýtur hann frísins vel á ströndum Ítalíu.
Markalaust var í hálfleik en eina mark leiksins kom á 48. mínútu þegar Andre Silva skoraði eftir undirbúning Bruma. Lokatölur 1-0.
Þetta var annar leikur Ítalíu í riðlinum en þeir eru með eitt stig eftir jafntefli við Pólland í fyrstu umferðinni. Portúgalar á toppnum með þrjú stig.
Ronaldo-lausir Portúgalar unnu Ítalíu
