Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Skagamenn skoruðu fjögur í Úlfarsárdal í gær.
Skagamenn skoruðu fjögur í Úlfarsárdal í gær. Guðmundur/Vísir

ÍA vann 4-2 útisigur á Fram í Úlfarsárdal í gær í næst síðustu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Þar gekk á ýmsu og Framarar manni færri stærstan part.

Kristófer Konráðsson kom Frömurum yfir í leiknum eftir aðeins fjórar mínútur en Fram varð manni færri þegar Freyr Sigurðsson fékk beint rautt spjald fyrir groddaralega tæklingu eftir 12 mínútna leik.

Klippa: Fram 2-4 ÍA

Miðvörðurinn Baldvin Þór Berndsen skoraði tvö mörk til að koma Skagamönnum yfir en Kristófer jafnaði með sínu öðru marki fyrir fram.

Komið var fram í uppbótartíma þegar Rafael Máni Þorsteinsson og Viktor Jónsson skoruðu sitthvort markið til að tryggja ÍA 4-2 útisigur.

Sjá má mörkin og rauða spjaldið í spilaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×