Reykjavíkurdætur hitta í mark í Evrópu Stefán Þór Hjartarson skrifar 25. september 2018 07:00 Það er ekki vitlaust að veðja á að Reykjavíkurdætur verði næsta stóra band frá Íslandi. Berglaug Petra Garðarsdóttir „
Þetta er auðvitað þvílík viðurkenning. Hinir listamennirnir sem eru tilnefndir í okkar flokki eru allt listamenn sem við höfum hlustað á og það að við séum tilnefndar í sama flokki sýnir okkur á hvaða stað við erum komnar. Við höfum náttúrulega verið að spila mjög mikið á stórum tónlistarhátíðum í Evrópu í sumar og erum komnar með mjög „solid live show“ og efni sem fólk hefur verið að taka rosalega vel og viðtökurnar hafa sýnt okkur að við erum komnar lengra en við vorum komnar bara á síðasta ári - þessi tilnefning er bara mjög „solid“ staðfesting á því. Nú er umboðsmaðurinn okkar í viðræðum við plötuútgefendur erlendis og það getur ekki skemmt fyrir að við höfum fengið þessa viðurkenningu,“ segir Steinunn Jónsdóttir úr Reykjavíkurdætrum aðspurð hvernig það sé að fá tilnefningu til Music Moves Europe Forward Talent (MMEFT) verðlaunanna. „Þetta þýðir að aðrir vita jafn vel og við hvert okkar „potential“ er þannig að þetta kemur lítið á óvart en við erum að sjálfsögðu mjög ánægðar,“ bætir Anna Tara Andrésdóttir við. Greint var frá því í gær á vef Fréttablaðsins að dæturnar hefðu hlotið tilnefningu til þessara verðlauna og að þær bætist þar með í flokk með íslensku sveitunum Of Monsters and Men og Ásgeiri Trausta – sem hlutu verðlaunin og „meikuðu“ það í kjölfarið eins og alþjóð veit.Hljómsveitin Of Monsters and Men hefur unnið þessi eftirsóttu verðlaun.Mynd/Meredith TruaxReykjavíkurdætur eru tilnefndar í flokknum hiphop en í hverjum flokki eru fjórar hljómsveitir eða listamenn og hreppa tvö bönd verðlaunin eftirsóttu.Hvernig verðlaun eru þetta? „Þetta eru verðlaun sem ráð innan Evrópusambandsins veitir tíu nýjum tónlistarmönnum eða hljómsveitum á hverju ári (hétu áður EBBA) og eru í raun viðurkenning fyrir að ná til áheyrenda utan síns heimalands. Allir listamennirnir sem fá tilnefningu eru í raun að springa út, það er búnir að byggja upp stóran áheyrendahóp en ekki kannski orðnir risastórir. Adele, MØ, Lykke Li, Damien Rice, Mumford & Sons og Dua Lipa hafa öll hlotið þessa viðurkenningu og eru þau öll með vinsælustu tónlistarflytjendum heimsins í dag.“ Aðspurðar hvort dæturnar ætli að mæta á verðlaunaafhendinguna með látum svarar Anna Tara: „Auðvitað mætum við á verðlaunaafhendinguna og verðum með pop-up tónleika sem við höfum ekki enn tilkynnt skipuleggjendum.“ Verðlaunin verða afhent í janúar á næsta ári. Hér að neðan má sjá nýjustu afurð sveitarinnar, myndband við lagið Ekkert drama.
Birtist í Fréttablaðinu Menning Tengdar fréttir Ekkert drama hjá Reykjavíkurdætrum og Svölu Reykjavíkurdætur og Svala Björgvinsdóttir gáfu í gær út nýtt myndband við lagið Ekkert drama. 24. ágúst 2018 15:30 Reykjavíkurdætur frumsýna nýtt myndband Vísir frumsýnir myndbandið við lagið Hvað er málið. 26. desember 2017 12:00 Reykjavíkurdætur koma fram á Sónar Reykjavíkurdætur munu koma fram á Sónar Reykjavík en þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum Sónar. 20. desember 2017 13:15 Mest lesið Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Lífið Magnús Hlynur í Efstaleitið Lífið Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Lífið Chuck Norris lagður inn á spítala Bíó og sjónvarp Jay-Z breytir um nafn... aftur Tónlist Helstu einkenni breytingaskeiðsins og mögulegar lausnir Lífið Hvað veistu um… Akureyri? Lífið Afroman fagnaði sigri gegn sjö lögregluþjónum Lífið Ástrós getur elskað fleiri en einn í einu: „Hvernig hefurðu tíma í þetta?“ Lífið Gæðastund með gæðablóðum Lífið Fleiri fréttir Jay-Z breytir um nafn... aftur Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Hringdu kannski-stjarnan orðin mamma Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Herra Hnetusmjör er söngvari ársins „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Boy George keppir fyrir San Marínó Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira
Ekkert drama hjá Reykjavíkurdætrum og Svölu Reykjavíkurdætur og Svala Björgvinsdóttir gáfu í gær út nýtt myndband við lagið Ekkert drama. 24. ágúst 2018 15:30
Reykjavíkurdætur frumsýna nýtt myndband Vísir frumsýnir myndbandið við lagið Hvað er málið. 26. desember 2017 12:00
Reykjavíkurdætur koma fram á Sónar Reykjavíkurdætur munu koma fram á Sónar Reykjavík en þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum Sónar. 20. desember 2017 13:15