Stór hluti málanna stoppi hjá lögreglu Gunnþórunn Jónsdóttir skrifar 18. október 2018 08:30 Lögreglustöðin við Hverfisgötu. vísir/anton brink
Hildur Fjóla Antonsdóttir, doktorsnemi í réttarfélagsfræði við háskólann í Lundi í Svíþjóð, gerði víðtæka rannsókn á árunum 2008-2009, ásamt Þorbjörgu Sigríði Gunnarsdóttur, þar sem þær fylgdu hverju einasta kynferðisbrotamáli eftir hjá lögreglunni. Hildur Fjóla vinnur nú að doktorsritgerð um upplifun þolenda kynferðisbrota af lagalegri stöðu sinni og réttindum og hugmyndir þeirra um réttlæti. Hildur Fjóla segir að sein afgreiðsla kynferðisbrotamála innan lögreglunnar sé vel þekkt fyrirbæri. „Lögreglan ber það iðulega fyrir sig að ástæða hægrar afgreiðslu sé skortur á fjármagni og mannafla. Ég hélt að lögreglan hefði fengið innspýtingu fjármagns með nýrri ríkisstjórn. Það kom fram í ríkisstjórnarsáttmála að það stæði til að fullfjármagna þessa aðgerðaáætlun sem samráðshópur innanríkisráðuneytisins gerði um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins og lá fyrir árið 2017. Ég hélt að sú fjármögnun væri komin til skila,“ segir hún. Það er hlutverk lögreglunnar að afla allra nauðsynlegra gagna í málinu til þess að ákærandi geti tekið ákvörðun um hvort gefa eigi út ákæru eða ekki. Lögreglan getur þó ákveðið að hætta rannsókn ef ekki er talinn grundvöllur fyrir frekari rannsókn, eða vísað málinu frá. „Þarna tel ég að oft sé pottur brotinn. Stór hluti málanna stoppar hjá lögreglunni. Það eru margar og flóknar ástæður fyrir því en þegar ég var að taka viðtöl við fólk innan lögreglunnar á sínum tíma þá kom í ljós að þetta færi líka mikið eftir færni einstaklinga. Það getur einnig skipt máli fyrir framgang mála að rannsóknarlögreglumenn og aðstoðarsaksóknarar hafi trú á einstaka málum sem og málaflokknum í heild.“Brotaþolar úti í kuldanum Í kynferðisbrotamálum á Íslandi er litið á brotaþola sem vitni í eigin málum. Brotaþoli hefur enga stöðu í málinu og er ekki málsaðili og þar af leiðandi fær viðkomandi oft ekkert að vita um framgang málsins fyrr en ákveðið hefur verið hvort málið verður fellt niður eða gefin út ákæra. Ekki nema viðkomandi hafi sérlega duglegan réttargæslumann sem hefur reglulega samband við lögreglu til að afla upplýsinga. „Staða sakborninga og ákærðra er afar sterk þar sem litið er svo á að þarna sé ríkið að fara gegn óbreyttum borgara og því þurfi viðkomandi að geta varið sig og gætt hagsmuna sinna. En staða brotaþola er aftur á móti veik þar sem brotaþolar eru ekki aðilar að sakamálinu og hagsmunir þeirra ekki skilgreindir og tryggðir með sambærilegum hætti. Það er oft þannig að brotaþolar koma á lögreglustöð og kæra og síðan heyra þeir ekki neitt, vita ekki hvað er í gangi í lögreglurannsókninni og hvort það sé búið að taka skýrslu af geranda eða ekki,“ segir Hildur Fjóla. „Þetta getur valdið gríðarlegu óöryggi hjá brotaþola sem hefur þá ekki forsendur til að gera persónulegar ráðstafanir ef þess þarf, til að mynda öryggisráðstafanir. Brotaþolar eru oft hræddir um að gerendur hefni sín á þeim fyrir það að kæra. Eins ef gerendur hafa samband við brotaþola er erfitt að meta stöðuna ef þeir vita ekki einu sinni hvort gerendur viti af kærunni eða hvort þeir hafi farið í skýrslutöku. Það að málin hafi formlega lítið sem ekkert með brotaþola að gera gengur ekki.“ Réttarstaða brotaþola er mun sterkari alls staðar annars staðar á Norðurlöndunum fyrir utan Danmörku. Þar er litið svo á að aukin aðkoma brotaþola hjálpi til við að upplýsa málið. Myndir þú segja að það væri skref í rétta átt að breyta þessu og gera brotaþola að málsaðila? „Já, ég held að það sé eitthvað sem skiptir mjög miklu máli. Það myndi væntanlega gera kerfið aðeins skárra í það minnsta, að brotaþoli fái upplýsingar um framgang í eigin máli á ákveðnum tímapunktum og hafi einhverja aðkomu að því, bæði á stigi lögreglurannsóknarinnar og ef málið fer fyrir dóm. Þetta er eitt af þeim málum sem núverandi ríkisstjórn hefur sett á oddinn.“ –
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Fleiri fréttir Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Sjá meira