Francesco Molinari fullkomnaði frábært golfár sitt með því að standa uppi sem sigurvegari á Evrópumótaröðinni en mótaröðinni lauk í dag.
Molinari lék samtals á 6 höggum undir pari á DB World Tour meistaramótinu sem haldið var í Dubai og dugði það honum til þess að enda sem efsti maður á peningalista mótaraðarinnar.
Molinari þénaði um 6,1 milljón evra á tímabilinu en það var rúmlega einni og hálfri miljón evra en næsti maður á listanum, sem var Justin Rose.
Sigurvegari síðasta árs, Tommy Fleetwood var eini maðurinn sem gat náð Molinari en það tókst ekki. Fleetwood endaði í fjórða sæti peningalistans.
Fleetwood og Molinari mynduðu saman frábært teymi í Ryder bikarnum fyrr á þessu ári, og unnu alla sína leiki sem þeir léku saman. Molinari gerði enn betur og varð fyrsti Evrópumaðurinn til þess að vinna alla fimm leiki sína á mótinu, en Fleetwood tapaði lokaleik sínum.
Molinari fullkomnar því stórkostlegt golfár sitt með þessum titli. Ítalinn vann BMW PGA meistaramótið í maí á þessu ári, þar sem hann var í baráttu við Rory McIlroy og í júlí stóð hann uppi sem sigurvegari á opna breska meistaramótinu, sem er eitt af risamótunum í golfi. Það er hans eini sigur á risamóti til þessa.
Molinari fullkomnar frábært golfár með sigri á Evrópumótaröðinni
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar

Mest lesið


Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool
Enski boltinn



„Gæðin í liðinu munu alltaf skora mörk“
Íslenski boltinn





Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi maðurinn á bak við sigur Víkinga
Íslenski boltinn