Fjórir fuglar á fimm holum í frábærri byrjun Birgis Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. nóvember 2018 15:30 Birgir Leifur Hafþórsson vísir/getty
Birgir Leifur Hafþórsson byrjaði vel á fyrsta hring lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Birgir Leifur spilaði fyrsta hringinn af sex á fimm höggum undir pari og er jafn í 18. - 32. sæti þegar flestir kylfingar hafa lokið keppni á fyrsta keppnisdegi. Birgir byrjaði frábærlega og fékk fjóra fugla á fyrstu fimm holunum. Hann lækkaði flugið aðeins eftir það og fékk pör á næstu holum. Á seinni níu holunum fékk hann tvo fugla en á 15. holu kom skolli og lauk hann því leik á fimm undir pari. Þjóðverjinn Max Schmitt og Daniel Gavins eru í forystu á níu höggum yfir pari. Efstu 25 kylfingarnir í lok úrtökumótsins fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð Evrópu, á næsta ári.
Golf Mest lesið Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Handbolti Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Miðvörður Chelsea illa meiddur enn á ný Enski boltinn Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ Handbolti Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn Englandsmeistarar Chelsea meðal liða sem vilja Cecilíu Rán Fótbolti „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Körfubolti Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Formúla 1 „Hann er með vonir og væntingar heils bæjarfélags á bakinu“ Körfubolti „Dreymir alla um að lyfta þessum bikar“ Sport Fleiri fréttir Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira