
Krónan og 3. orkupakkinn; sama súpan í sömu skálinni
Verst var þetta í hruninu, þegar skuldir margra tvöfölduðust og margir misstu aleiguna. Hrunið lagði í raun líf margs góðs Íslendingsins í rúst.
Ýmsir framámenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokkanna tveggja halda því fram, að krónan hafi komið okkur út úr hruninu, þó að flestir menn hljóti að sjá og skilja, að það var einmitt krónan, sem kom okkur í hrunið.
Oft reyna íhalds- og afturhaldsöflin að skírskota til þjóðernistilfinninga manna, föðurlandsástarinnar, í málflutningi sínum. Þeir vita, að þessar tilfinningar eru ríkar í brjósti margra – sem í sjálfu sér er gott, svo lengi sem vitsmunir fylgja – og, að með þessum hætti kunni þeir að komast upp með yfirborðskenndar og einfaldar fullyrðingar, oft hrein ósannindi og blekkingar, málstað sínum til framdráttar.
„Krónan er íslenzk, hún er hluti af sögu okkar og menningu“, segja þessir menn. – Hið sanna er, að krónan er mælieining á fjármuni og verðmæti, og eru krónur í gangi í ýmsum öðrum löndum, svo sem Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Tékklandi.
„Krónan hefur bjargað okkur út úr hverju efnahagsáfallinu á fætur öðru“ er líka viðkvæði þessara manna. - Staðreyndin er hins vegar sú, að veikleiki og burðaleysi krónunnar hefur, hvað eftir annað, leitt til verðfalls hennar og verðbólgu, sem hefur hækkað innlendan kostnað, sem aftur hefur verið leiðrétt með gengisfellingu, til að útflutningsatvinnuvegirnir fengju fleiri krónur fyrir sinn varning, til að mæta vaxandi kostnaði í krónum.
Þetta hefur aftur leitt til hækkandi verðs á innfluttum vörum, sem svo hefur leitt til hækkandi launakrafna og launa.
„Björgun“ er því hér alrangt orð. Rétta orðið er „vítahringur“; krónan hefur skapað hér vítahring, sem ekki hefur verið rofinn og ekki verður hægt að rjúfa.
Ef Íslendingar ættu engan valkost í gjaldmiðlamálum, væri lítið við þessum krónuvanda að gera. Svo er hins vegar ekki. Íslendingar hafa átt aðgang að öflugasta og traustasta gjaldmiðli heims, Evrunni, um langt árabil.
12 evrópsk ríki gengu í ESB á árunum 2004 til 2007. Ekki er ósennilegt, að Ísland hefði líka getað tryggt sér aðild að ESB á þessu tímaskeiði, og, í framhaldi af því, tekið upp Evruna, en afturhaldsöfl landsins komu í veg fyrir það.
Því fór sem fór 2008.
Það er loks ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, sem tekur af skarið, enda heljarstökk hrunsins rétt afstaðið, og sækir um aðild að ESB 2009.
Því miður komust þröngsýnis- og íhaldsöflin aftur til valda 2013, og tilkynnti Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra stjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, ESB í marz 2015, að Íslandi drægi umsóknina til baka.
Þessir 2 menn, ásamt formanni Sjálfstæðisflokksins, ákváðu með þessari tilkynningu að halda sér í krónufarinu, þó að það hafi nánast valdið þjóðargjaldþroti nokkrum árum áður.
Síðasta óþurftarverk þessara óábyrgu öfga- og íhaldssafla er að reyna að gera EES-samninginn, sem gerði okkur kleift að rífa okkur upp úr hruninu, með frjálsum og tollalausum aðgangi að stærsta og öflugasta markaði heims, tortryggilegan; reyna jafnvel að að spilla honum.
Í umræðunni um 3. orkupakkann skirrast þessi öfl ekki við, að beita ósannindum og blekkingum; og óspart er reynt að spila á þjóðerniskennd og tilfinningalíf manna.
Landsmönnum er talin trú um, að við séum að framselja forræði okkar yfir innlendri orku með því að samþykkja 3. orkupakkann. Fásinnan í þessu er með ólíkindum, þar sem við erum alls ekki inn í evrópsku orkukerfi, ekki inni á evrópskum orkumarkaði, af þeirri einföldu ástæðu, að við erum eyríki; 2.000 km úti í reginhafi.
Lygamerðir er ekki fallegt orð, en það kynni að eiga við hér.
Þá fyrst, ef lagður yrði sæstrengur til Bretlandseyja og við tengdumst evrópsku orkukerfi, hefði þessi pakki eitthvað fyrir okkur að segja. En auðvitað yrði slíkur strengur ekki lagður, nema að okkur hentaði það sjálfum og hefðum vilja til. Varla færu útlendingar að leggja rándýran sæstreng til Íslands, án þess að hafa hér aðgang að orku.
Önnur og mikilvæg hlið á málinu er svo sú, að þáttur sólar-, vind- og sjávarfallaorku vex óðfluga á meginlandi Evrópu, og styrkist stöðugt með örri tækniþróun, þannig, að óvíst er með öllu, hvort íslenzk orka verður samkeppnishæf á evrópskum orkumarkaði, þegar tímar líða.
Ef svo færi, væri það auðvitað okkar hagur, að hafa aðgang að hagkvæmari orku frá Evrópu. Alla vega skapaðist þá heilbrigð samkeppni í orkusölu hér.
Í öllu falli yrði það okkar eigin ákvörðun, hvort við vildum vera inni á evrópskum orkumarkaði, til að selja eða kaupa orku, og, ef til kæmi, með hvaða hætti.
Sæstrengur verður alfarið okkar mál. ESB hefði ekkert um hann að segja, hvað sem 3. orkupakkanum líður.
Skoðun

Brýr, sýkingar og börn
Jón Pétur Zimsen skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Hvað er lýðskóli eiginlega?
Margrét Gauja Magnúsdóttir skrifar

Búum til pláss fyrir framtíðina
Birna Þórarinsdóttir skrifar

Hættuleg ofnotkun svefnlyfja á Íslandi
Drífa Sigfúsdóttir skrifar

Kveikjum neistann um allt land
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Ætlar Ísland að fara sömu leið og Evrópa í útlendingamálum?
Kári Allansson skrifar

Samtökin 78 verðlauna sögufölsun
Böðvar Björnsson skrifar

Afstaða – á vaktinni í 20 ár
Arndís Vilhjálmsdóttir,Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Menntun sem mannréttindi – ekki forréttindi
París Anna Bergmann,Sigurður Kári Harðarson skrifar

Varað við embætti sérstaks saksóknara
Gestur Jónsson skrifar

Út af sporinu en ekki týnd að eilífu
María Helena Mazul skrifar

Meira að segja formaður Viðreisnar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Gaza sveltur til dauða - Tími bréfaskrifta er löngu liðinn
Magnús Magnússon,Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Steypuklumpablætið í borginni
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir skrifar

Kærum og beitum Ísrael viðskiptabanni!
Pétur Heimisson skrifar

Blæðandi vegir
Sigþór Sigurðsson skrifar

Fái einstaklingar sem eru hættulegir sjálfum sér ekki viðeigandi búsetuúrræði blasir við mikill harmleikur
Elínborg Björnsdóttir skrifar

Hroki og hleypidómar - syngur Jónas Sen?
Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar

Sveitarfélög gegna lykilhlutverki í vistvænni mannvirkjagerð
Guðrún Lilja Kristinsdóttir,Bergþóra Góa Kvaran skrifar

„Nýtt veiðigjald: sátt byggð á hagkvæmni“
Svanur Guðmundsson skrifar

Opinber áskorun til prófessorsins
Brynjar Karl Sigurðsson skrifar

Nærvera
Héðinn Unnsteinsson skrifar

Þegar Dagur lét mig hrasa á gangstéttarhellu
Björn Teitsson skrifar

Þessi jafnlaunavottun...
Sunna Arnardottir skrifar

Heilsuspillandi minnisleysi í boði Sjálfstæðisflokksins
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

#BLESSMETA – fyrsta grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Dáleiðsla er ímyndun ein
Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Þing í þágu kvenna
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Drengir á jaðrinum
Margrét Kristín Sigurðardóttir skrifar