Djamm, djús og drama Sögur útgáfa kynnir 12. desember 2018 14:00 Vera Illugadóttir nálgast söguna á skemmtilegan hátt.
Vera Illugadóttir hefur tekið saman alla þjóðhöfðingja Íslands í eina bók, allt frá Hákoni gamla til Guðna Th. Jóhannessonar. Þjóðhöfðingjar Íslands er ekki þurrt fræðirit, eins og nafnið gæti bent til heldur er bókin full af skemmtilegum sögum. „Þarna eru margar litríkar persónur, konungar sem voru mikið fyrir djús og djamm og heilmikið drama,“ segir Vera. „Hugmyndin að bókinni kom upp í samráði við útefandann og föður minn, Illuga Jökulsson. Okkur fannst að það gæti verið gaman að taka saman alla þá sem teljast hafa verið konungar Íslands. Við skelltum síðan íslensku forsetunum með. Ég hugsa bókina sem létta og frekar stutta yfirferð á langri sögu margra einstaklinga og reyni að hafa hana líka dálítið spennandi,“ segir Vera. Bókin fjalli ekki eingöngu um stjórnunarhætti og stríðsbrölt heldur rýnir Vera í persónurnar sjálfar og ýmis fjölskyldumál kóngafólksins. Þá skoðaði hún hvaða áhrif viðkomandi þjóðhöfðingi hafði á Ísland. „Margir konunganna höfðu engan áhuga á þessari eyju þó hún teldist innan þeirra konungdóms, sérstaklega fyrri hluta sögunnar. Þeir konungar sem settu mestan svip á íslenska sögu voru síðustu danakonungarnir, enda Íslendingar þá farnir að gera sig meira gildandi og hafa sig í frammi,“ segir Vera. Hún hafi haft úr heilmiklum heimildum að moða. „Þetta var dálítið grúsk og nokkrir mánuðir fóru í skrifin meðfram öðru en þegar maður kemst á flug í grúskinu gengur þetta ágætlega. Danir og Norðmenn hafa haldið vel utan um heimildir um þjóðhöfðingja sína en það er mismikið um hvern að segja. Sumir voru lengi við völd og létu til sín taka eða voru áhugaverðir persónuleikar, aðrir ekki. Kaflarnir eru því mislangir. Á listanum er ein drottning, Margrét Valdimarsdóttir, sem réði á tímum Kalmarsambandsins og var mjög áhugaverður karakter, gífurlega sterk kona og ákveðin þar sem hún náði að sölsa undir sig völdin yfir þremur Norðurlandanna, Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Ef ég ætti að nefna einhvern uppáhalds þá væri það hún.“ Útvarpsþættir Veru, Í ljósi sögunnar, hafa vakið athygli en þar nálgast Vera fólk og viðburði í fortíð og samtíð á áhugaverðan og mannlegan þátt. Hlustendahópurinn er breiður, sem kom henni sjálfri á óvart. „Ég hélt jafnvel þegar ég byrjaði í útvarpinu að hlustendur yrðu helst eldri borgarar en þetta er fólk á öllum aldri. Það kom mér líka á óvart hvað margir hafa samband við mig vegna þáttanna. Mér finnst ótrúlega gaman að geta tekið þátt í að vekja áhuga almennt á sögu.“ Þjóðhöfðingjar Íslands er þriðja bók Veru. Sögur útgáfa gefa bókina út.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Sögur útgáfu.
Bókmenntir Menning Mest lesið Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Menning Stjörnurnar á hrekkjavökunni: Louvre-þjófur og vampírur Lífið Fréttatía vikunnar: Ríkislögreglustjóri, fellibylur og rasisti Lífið Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Menning Láta forræðishyggju hinna fullorðnu ekki fipa sig Lífið Breytti um nafn eftir djúpa ástarsorg Tónlist Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Tíska og hönnun Nýr skemmti- og spjallþáttur á Sýn Lífið Ískyggilega líkur ofurfyrirsætu: „Ég er með píku“ Lífið Atli Steinn fann ástina á ný Lífið Fleiri fréttir Vetrartískan er mætt í Boozt með kósýheit Nýir réttir Serrano aðgengilegir í LifeTrack appinu Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu „Við eigum meira blóð en blóðbankinn!“ Flytja alla Springsteen slagarana í Hörpu Frábær árangur í meðferðarstarfi Kalklitir og Slippfélagið mála framtíðina saman Hárolía, vinur eða óvinur hársins? Dineout gjafabréf er jólagjöfin í ár Hjálpa öðrum að eignast lítil kraftaverk Þarf alltaf að vera vín? Trúði varla eigin augum þegar hún sá fyrir og eftir myndirnar Úrval Útsýn hefur svarað kalli um björgunarfargjöld Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Sjá meira