Björn Daníel Sverrisson samdi við uppeldisfélagið í Krikanum í dag en hann kemur til FH frá AGF í Danmörku. Hann fór frá FH til Viking árið 2013.
Sjá einnig:Björn Daníel: Mikið talað um hvað ég fæ í laun en þetta er vinnan mín
„Það er gott að fá Bjössa. Hann er öflugur, á góðum aldri og hungraður í að spila,“ segir Ólafur.
„Hann er ekki gamall og ekki slitinn. Það er jákvætt að menn eru að koma hingað innan við þrítugt með reynslu og allt það frekar en að koma heim komnir yfir þrítugt á síðustu metrunum.“
„Hann á mörg ár eftir og við væntum mikils af honum. Oft er talað um að það sé erfitt að koma heim þannig við þurfum að nota næstu fimm til sex mánuði í það að tjúna leikmanninn inn á það að enginn kemur í þessa deild og slær slöku við. Þetta er alvöru deild og allir þurfa að vera einbeittir,“ segir hann.

Ætla að berjast um titla
FH-ingar áttu í basli með að skora mörk á síðustu leiktíð, allavega nógu mörg til að vinna bikar eða komast í Evrópu. Björn Daníel er vissulega ekki framherji en ansi marksækinn miðjumaður sem ætti að nýtast FH-liðinu.„Hann skorar úr föstum leikatriðum, er með góð skot fyrir utan teig og getur líka stungið sér inn á teiginn þegar að það á við. Hann gerði það í Noregi og þegar að hann fékk tækifæri í Danmörku. Hann var að skila 5-10 mörkum á tímabili áður en hann fór út og vonandi getur það haldið áfram,“ segir Ólafur.
FH hafði betur í samkeppni við Val um undirskrift Björns Daníel. Er þetta yfirlýsing frá FH um að það ætlar ekki að verða undir í baráttunni við Hlíðarendafélagið, eða hin toppliðin, hvorki innan né utan vallar?
„Það er alveg ljóst að FH hefur alltaf haft mikinn metnað og síðasta tímabil var vonbrigði þegar kom að úrslitunum og hvernig við enduðum mótið. Hér eru menn ekkert að slá slöku við,“ segir Ólafur.
„Er þetta yfirlýsing? Já, þú getur alveg sagt það. Við ætlum okkur að vera með. Við ætlum okkur að gera betur en á síðasta tímabili og setja FH þangað sem það á að vera sem er að berjast um titla á Íslandi,“ segir Ólafur Kristjánsson.