Körfubolti

Missti af leik með KR vegna her­skyldu

Sindri Sverrisson skrifar
Rafail Lanaras hefur staðið sig vel með KR en missti óvænt af leiknum við Sindra í gær.
Rafail Lanaras hefur staðið sig vel með KR en missti óvænt af leiknum við Sindra í gær. vísir/Anton

KR-ingar voru án öflugs leikmanns í sigri sínum á Sindra í Vesturbænum í gærkvöld, í Bónus-deild karla í körfubolta, þar sem hann þurfti að uppfylla kröfur vegna herskyldu í heimalandinu.

Gríski bakvörðurinn Rafail Lanaras hefur spilað vel með KR á tímabilinu eftir að hafa samið við félagið til skamms tíma nú í haust. Hann var fenginn til að fylla í skarðið vegna þess hve seint hefur gengið að fá leyfi Útlendingastofnunar fyrir því að Bandaríkjamaðurinn Rashun Davis spili með KR í vetur.

Lanaras var hins vegar hvergi sjáanlegur í Vesturbænum í gær og á það var bent í grein á karfan.is að hann hefði þurft að ferðast til Grikklands vegna herskyldu. Þetta staðfesti Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari bikarmeistaranna, við Vísi.

„Það er herskylda í Grikklandi og hann þurfti óvænt að fara út, hitta fólk þar og tilkynna sig, en er svo bara að koma aftur til landsins á morgun. Menn fá lítinn fyrirvara fyrir svona og þetta var bara óheppileg tímasetning,“ sagði Jakob.

Bíða enn niðurstöðu Útlendingastofnunar

Lanaras, sem lék með Þór Þorlákshöfn síðasta vetur, er með samning við KR sem gildir næstu þrjár vikurnar, eða fram að næsta landsleikjahléi. Hann er því klár í stórleikinn við Álftanes næsta fimmtudagskvöld og leikina við Hött og ÍR í kjölfarið.

Jakob segir framhaldið óljóst og enn sé óvissa um málefni Rashun Davis.

„Við höfum ekkert heyrt meira. Eftir því sem ég best veit er hans mál enn hjá Útlendingastofnun og hefur ekki verið tekið fyrir. Ég veit ekkert hvenær niðurstaða kemur í það.“

Félagaskiptaglugginn er opinn út janúar og Jakob er rólegur yfir stöðunni, að minnsta kosti á meðan Lanaras nýtur við.

„Við erum klárlega að skoða hvað er í boði en það er engin sérstök tímapressa í þessu núna,“ segir Jakob.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×