Í þeim hópi fjárfesta eru meðal annars sjóður í stýringu Blackstone, eins stærsta fjárfestingarsjóðs heims, asísk hótelkeðja og eins sameiginlegt tilboð frá Keahótelum og fasteignafélaginu Regin, samkvæmt heimildum Markaðarins. Frestur til að skila inn skuldbindandi tilboðum í Icelandair Hotels er til 12. febrúar næstkomandi en stefnt er að því að niðurstaða fáist í söluferlið fyrir lok fyrsta ársfjórðungs. Heildarvirði hótelkeðjunnar – hlutafé og vaxtaberandi skuldir – er bókfært á um 111 milljónir dala í reikningum Icelandair Group og því gæti flugfélagið fengið umtalsverðan hagnað við söluna miðað við þau óskuldbindandi tilboð sem nú liggja fyrir.

Icelandair Hotels rekur 13 hótel í Reykjavík og á landsbyggðinni auk þess að reka einnig sumarhótelkeðjuna Hótel Eddu, en um er að ræða alls 1.937 herbergi á landinu öllu. Tekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum síðasta árs námu samtals um 93 milljónum dala, jafnvirði 11 milljarða króna, og jukust um tólf milljónir dala frá sama tíma fyrir ári en á árinu 2018 bættust þrjú ný hótel við rekstur Icelandair Hotels sem jók framboð hótelherbergja um 197. Icelandair Group hefur upplýst um að áætlað hafi verið að leigutekjur fasteigna hótelkeðjunnar hafi numið 700 milljónum króna á síðasta ári og að EBITDA hótelrekstrar yrði um 900 milljónir. Fyrir núverandi ár er gert ráð fyrir að leigutekjur fasteigna nemi 800 milljónum og að EBITDA hótelrekstrar verði um 1.100 milljónir.
Vildi kaupa í Bláa lóninu
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Blackstone falast eftir stórri fjárfestingu í íslenskri ferðaþjónustu. Þannig áformaði sjóður á vegum félagsins, sem er stýrt af Chad Pike, einum af yfirmönnum Blackstone í Evrópu, en fyrirtæki í hans eigu rekur lúxushótelið Deplar Farm í Fljótunum í Skagafirði, að kaupa 30 prósenta hlut HS Orku í Bláa lóninu sumarið 2017 fyrir um 110 milljónir evra, jafnvirði 13 milljarða króna á þáverandi gengi. Ekkert varð hins vegar af kaupunum þegar Jarðvarmi, samlagshlutafélag í eigu fjórtán lífeyrissjóða, beitti neitunarvaldi sínu og hafnaði tilboðinu.Keahótel, sem er þriðja stærsta hótelkeðja landsins, rekur meðal annars Hótel Borg og Apótek hótel í miðbæ Reykjavíkur. Stærstu eigendur félagsins, sem komu inn í hluthafahópinn haustið 2017, eru bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Pt Capital Advisors og bandaríska fjárfestingar- og þróunarfélagið JL Properties, sem er með aðsetur í Alaska, með samtals 75 prósenta hlut.