Platan, Floni 2, inniheldur sjö lög og er rapparinn Birnir Flona til halds og trausts í einu laginu. Fyrsta lagið ber heitið „Kominn aftur“ og er það líklega viðeigandi titill þar sem rúmlega ár er síðan hann gaf út sína fyrstu plötu, Floni, en hún kom út í desember 2017.
Það vakti athygli margra þegar Floni tók sig til og hreinsaði út af Instagram-síðu sinni á meðan hann var að vinna að plötunni. Hann segir það hafa verið gert til þess að einbeita sér alfarið að gerð plötunnar og leggja sig allan í ferlið. Tónlistin gangi alltaf fyrir.
„Núna er fókusinn bara á tónlistinni sem ég vil gera og þess vegna vildi ég bara fara í smá „social media blackout“ til þess að ferlið gengi upp.“

Ferlið fór strax af stað eftir fyrstu plötu
Fyrsta plata Flona vakti mikla athygli og skaut honum upp hratt upp á stjörnuhimininn. Floni, sem var glænýtt nafn í tónlistarheiminum á þeim tíma, er nú orðinn fastagestur á spilunarlistum margra Íslendinga og hefur komið fram á mörgum viðburðum síðan þá.„Hvatningin kom eftir Flona 1 þar sem hún gekk ótrúlega vel og ég er náttúrulega alltaf að þróa stílinn minn meira og vildi bara halda áfram,“ segir Floni og bætir við að platan hafi verið í vinnslu allt frá því að fyrsta platan kom út. Mörg lög hafi verið til í einhvern tíma og hin hafi svo fylgt í kjölfarið.
Floni segir mikla vinnu liggja að baki og margir hafi hjálpað honum við gerð hennar, reyndir pródúsentar og hljóðfæraleikarar. Hann segir skemmtilegt að vinna tónlist í tölvu líkt og hann hefur gert hingað til en með hljóðfærunum komi meiri andi í plötuna.
„Mér finnst þetta vera mjög „high quality“ stúdíó plata. Vinnslan á þessari plötu er mjög „professional“ og ég er kominn með alvöru hljóðfæri í þetta til að gera þetta meira lifandi,“ segir Floni og nefnir þar hljómborðsleikarann Magnús Jóhann Ragnarsson sem er einn þeirra sem hefur unnið að plötunni með honum ásamt Arnari Inga Ingasyni sem er betur þekktur sem Young Nazareth.
„Þetta er svo gaman, það að vinna að tónlist fyrir mér er bara geggjað og eitthvað sem ég finn mig í,“ segir Floni að lokum.